151. löggjafarþing — 60. fundur, 25. feb. 2021.
sala Landsbankans á fullnustueignum.
Virðulegur forseti. Ég ber fulla virðingu fyrir því að hv. þingmaður telji að hann ætti að hafa greiðara aðgengi að þessum upplýsingum. En þetta er engu að síður niðurstaða ráðuneytisins. Ég mun bara líta á þetta sem hvatningu til þess að spyrja mig að því hvort sú lagaumgjörð sem ræður úrslitum um þetta efni sé of þröng og bregðast við í samræmi við það.