fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Það er ekki rétt sem haldið hefur verið fram að aðskilnaði fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi muni fylgja aukinn kostnaður fyrir viðskiptavinina heldur þvert á móti. Fjárfestingarbankastarfsemi þarf ekki að vera með eins miklar hömlur og viðskiptabankastarfsemi sem sér um innlán og sparifé almennings. Í öllu falli, herra forseti, yrði kostnaðurinn mun minni. En ef glæfralegar fjárfestingar eigenda viðskiptabanka færu illa þá myndi kostnaðurinn lenda á okkur, eins og dæmin sanna með stórkostlegu efnahagshruni og vandræðum í kjölfar bankahruns. Það verður að aðskilja þessa starfsemi ef við viljum í raun verja almenning gegn falli og glæfralegri áhættutöku.