151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:02]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra heilbrigðismála, Svandísi Svavarsdóttur, fyrir að taka vel í beiðni mína um sérstaka umræðu um þetta mál og mæta hingað í þingsal. Það er svo að talmeinafræðingar og sjúkraþjálfarar og skjólstæðingar þeirra hafa tjáð sig um neikvæðar afleiðingar af breytingum heilbrigðisyfirvalda á starfsumhverfi þeirra. Þessar breytingar voru gerðar án þess að nægileg rök og útskýringar fylgdu með. Það má í raun kjarna afleiðingarnar af þeim þannig að þær vegi annars vegar að starfsöryggi fagfólks í heilbrigðiskerfinu og þar með þeirri fagþekkingu sem þar hefur byggst upp og hins vegar að þær leiði til vaxandi biðlista eftir þjónustu þar sem sannarlega var þó ærin bið fyrir, ekki síst á landsbyggðinni.

Það væri býsna sérstakt að ræða þessa stöðu án þess að minna á að þetta eru ekki einu sjálfstætt starfandi fagstéttirnar í heilbrigðisþjónustu sem eiga undir högg að sækja vegna ríkisvæðingarstefnu stjórnvalda. Ég kem aðeins að því aftur í lokin.

Hvað talmeinafræðinga varðar var í tíð þessarar ríkisstjórnar sett skilyrði í rammasamning þeirra um tveggja ára starfsreynslu til að komast á samning. Þetta þýðir að nýútskrifaður talmeinafræðingur, með nám að baki og öll tilskilin leyfi frá landlækni, getur ekki veitt sína þjónustu og fengið hana niðurgreidda frá Sjúkratryggingum nema hafa starfað hjá ríki eða sveitarfélagi fyrst í tvö ár. Talmeinafræðingar hafa ítrekað reynt að fá þessu ákvæði breytt án árangurs. Ástæður skilyrðisins af hálfu heilbrigðisyfirvalda eru ýmist sagðar faglegs eðlis án nánari útskýringa eða varða kostnað.

Sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar á Íslandi eru 40–50 í mismiklu starfshlutfalli, þar af 12 á landsbyggðinni. Það eru um 600 einstaklingar á biðlista eftir þjónustu talmeinafræðinga, aðallega börn og unglingar þar sem snemmtæk íhlutun getur skipt lykilmáli. Biðin er 17–36 mánuðir samkvæmt nýlegri könnun. Skerðingin hefur eðlilega neikvæð áhrif á þjónustuna, mest þó á landsbyggðinni þar sem talmeinastofur geta ekki ráðið til sín nýútskrifaða talmeinafræðinga. Eru dæmi um að nýútskrifaðir talmeinafræðingar, búsettir úti á landi, þurfi að sækja vinnu í heilbrigðisstofnun í þéttbýli á meðan skortur er á þjónustunni í heimabæ þeirra og stofur sem þar starfa eru að gefast upp vegna manneklu. Þetta er auðvitað ekkert annað en óþolandi ástand fyrir íbúa landsbyggðarinnar.

Í þessu ljósi spyr ég: Ætlar heilbrigðisráðherra að halda skerðingarákvæðinu til streitu? Ef svo, af hverju?

Herra forseti. Sjúkraþjálfarar eru hin fagstéttin sem við ræðum. Hér er staðan sú að sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar, sem eru helmingur af þeim tæplega 700 sjúkraþjálfurum sem starfa hér á landi, hafa verið án samnings við Sjúkratryggingar í töluverðan tíma. Þeir hafa því starfað eftir svokallaðri endurgreiðslureglugerð og síðasti samningafundur við heilbrigðisyfirvöld var í lok maí árið 2019. Í síðasta mánuði var nýju ákvæði bætt inn í reglugerð þar sem gerð er krafa um, aftur, tveggja ára starfsreynslu á heilbrigðisstofnun og til viðbótar í a.m.k. 80% starfshlutfalli. Reglugerðin nær til þeirra sem útskrifast í vor. Hún skerðir starfsval. Margir þessara útskriftarnema voru komnir með tilboð á þeim stofum þar sem þeir voru í þjálfun en þess ber að geta að 40% af námsstofum útskriftarnema eru einmitt stofur. Þessir nemar treysta á vinnu þar eftir útskrift og stofurnar treysta á þessa starfsmenn.

Svo er það faglega hliðin en það er mikill munur á viðfangsefnum sjúkraþjálfara eftir því hvort þeir starfa á heilbrigðisstofnunum eða á stofum. Þetta eru tveir ólíkir geirar sjúkraþjálfunar. Þessi reglugerð mun því að mati Félags sjúkraþjálfara hafa áhrif á sérhæfingu sjúkraþjálfara til hins verra þar sem draga mun úr fjölbreytni.

Spurningin er til hæstv. heilbrigðisráðherra: Hver eru rökin fyrir þessu nýja ákvæði? Í ljósi neikvæðra áhrifa, m.a. á starfsmöguleika nýútskrifaðra sjúkraþjálfara og á þjónustu sjúkraþjálfara á landsbyggðinni, hyggst ráðherra draga breytinguna til baka?

Ég nefndi í upphafi að fleiri fagstéttir í heilbrigðisþjónustu ættu undir högg að sækja vegna ríkisvæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar. Ýmsir hafa líka bent á að þessi stefna, þar sem unnið er gegn samvinnu opinbers rekstrar og einkarekstrar í heilbrigðismálum, sé hægt og örugglega að mynda jarðveg fyrir tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi. Dæmi um slíka þróun má finna í svari heilbrigðisráðuneytis til áhyggjufulls útskriftarnema en ráðuneytið benti á að hún gæti stofnað eigin rekstur án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Það er sannarlega áhugaverð nálgun. Sú lausn (Forseti hringir.) kallar á að fólk sem gefst upp á biðlistum leiti til þessara nýútskrifuðu sjúkraþjálfara ef það treystir sér til að borga hærra verð en ella. Og hvað stendur þá eftir af þjóðarsáttmála okkar um (Forseti hringir.) að öllum sé tryggður jafn aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu óháð efnahag? Verður þessi þjónusta kannski í náinni framtíð (Forseti hringir.) sótt til Svíþjóðar eða Danmerkur eins og nýjustu dæmin sýna fyrir framtíðarsýn hæstv. ráðherra?