staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Virðulegi forseti. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er eitt það mikilvægasta fyrir okkur og að það sé á allra færi að greiða fyrir það, að kostnaðarþátttaka sjúklinga sé ekki of mikil. Til þess voru Sjúkratryggingar Íslands stofnaðar, til að reyna að finna þarna jafnvægi á milli og sjá hvernig hægt væri að gera það á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt. Því er mikilvægt að það gangi vel fyrir sig.
Eins og ég upplifi þetta eru annars vegar framlengdir samningar og hins vegar samningsleysi hjá þessum tveimur mikilvægu fagstéttum sem við fjöllum um, sem eru gríðarlega mikilvægar. Það eru stéttir sem aðstoða fólk við ýmsar hamlanir sem mikilvægt er að laga, sem komið getur í veg fyrir annan kostnað og bætt lífsgæði mikið og annað slíkt. Það er því mjög mikilvægt að slík þjónusta sé til staðar. Mér finnst það vera sameiginlegt þessum málum, samkvæmt upplýsingum frá þessum aðilum, að það vantar svolítið meira samstarf og samtal á milli fulltrúa ríkisins, sem er kaupandi að þjónustunni, og þessara aðila um hvernig þessi þjónusta verði sem best veitt þannig að hún nái markmiðum sínum. Það er svolítið slæmt ef við höfum ekki nógu miklar upplýsingar um hvaða afleiðingar það hefur að útfæra samningana og að ekki hafi náðst að eiga þetta samtal og samstarf áður en samningar renna út. Það er mikilvægt að við höfum allar upplýsingar um hvað þetta þýðir.
Að lokum vil ég segja að skortur á talmeinafræðingum eða sjúkraþjálfurum verður ekki leystur með samningsleysi við Sjúkratryggingar Íslands.