151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:19]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu. Eins og aðrir þingmenn hafa komið hér inn á fengum við þessar stéttir til okkar á fund velferðarnefndar. Ég tek undir það sem aðrir hv. þingmenn hafa sagt, mér var einnig brugðið. Mér var annars vegar brugðið vegna þess að samskiptin eru eins og þau eru á milli stjórnvalda og þessara stétta, og hins vegar vegna þess hversu langir biðlistarnir eru.

Börn og unglingar með tal- og málþroskaröskun þurfa nauðsynlega á aðstoð talmeinafræðinga að halda og mjög mikilvægt er að þau fái bót meina sinna eins snemma og við verður komið. Það er ekki bara mikilvægt fyrir þau í daglegu lífi heldur einnig til að fyrirbyggja frekari þróun röskunarinnar. Snemmtæk íhlutun er mjög mikilvæg og allar rannsóknir mæla sterklega með henni. En staðan í dag er mjög bágborin. Biðlistar eru afar langir og dæmi eru um að börn þurfi að bíða í um og yfir tvö ár eftir þjónustu. Ekki hafa tekist samningar við Sjúkratryggingar Íslands, sem er undirstofnun ráðuneytis hæstv. ráðherra, og ráðherra ber endanlega ábyrgð á málaflokknum. Talmeinafræðingar eru sífellt að verða meira áberandi stétt, bæði í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir sinna þjónustu við einstaklinga á öllum aldri með örðugleika tengda tali, máli og samskiptum. Þetta er mikilvæg stétt og aukinn skilningur er að verða á snemmtækri íhlutun.

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til dáða, að hún taki þennan málaflokk föstum tökum, leysi þetta samningavandamál og stytti biðlista. Það er mjög mikilvægt. Snemmtæk íhlutun hvað varðar svona hluti, bæði sjúkraþjálfun og talmein, er stefna sem verður að taka og stjórnvöld bera þar ábyrgð.