staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Virðulegi forseti. Það vekur furðu að fjölskyldur neyðist til að bíða eftir aðstoð talmeinafræðings á meðan fjöldi nýskráninga í nám í talmeinafræði er töluvert minni en fjöldi áhugasamra umsækjenda. Biðin eftir þjónustu er óvenjulega mikil, sérstaklega á landsbyggðinni. Þar hef ég heyrt sögur um að foreldrar bíði jafnvel í tvö til þrjú ár eftir að fá símtal eftir að hafa skráð sig. Biðtíminn hefur lengst og er það óviðunandi. Hann hefur áhrif á málþroska barna sem þurfa á aðstoð talmeinafræðings að halda. Einnig hefur hann áhrif á þá þjónustu sem talmeinafræðingar veita og Félag talmeinafræðinga deilir þeim áhyggjum.
Tekið er inn í nám í talmeinafræði annaðhvort ár og þá takmarkast hópur nýskráðra nemenda við 15 einstaklinga. Þó að aðsókn í námið sé mikil eru töluvert færri sem komast inn en vilja. Maður spyr sig: Hvað veldur? Hvers vegna lengist biðtími þeirra barna sem þurfa á þessari aðstoð að halda þegar það liggur í augum uppi að nýskráningar í talmeinafræði eru færri en hægt væri? Og af hverju er þessi takmörkun við töluna 15?
Virðulegi forseti. Samningur talmeinafræðinga við SÍ er útrunninn og vil ég hvetja samningsaðila til dáða til að ná ásættanlegri niðurstöðu. Við þessa stöðu er ekki hægt að una. Það er viðkvæmur hópur sem bíður og efla þarf þjónustu talmeinafræðinga um allt land. Börn sem falla undir niðurgreiðsluviðmið í talþjálfun þurfa að sækja þjónustu til sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga þar sem þeir sem starfa hjá sveitarfélögum og ríki eru bara í greiningu og ráðgjöf. Talþjálfun er mikilvæg aðstoð sem þarf að beita sem fyrst og því verður að ná samningum. Hér þarf að hafa þarfir barnanna í huga.