151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:24]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í störfum þingsins í gær tók ég fyrir biðlista í heilbrigðiskerfinu og líka það sem ég rakst á á sínum tíma, að fólk fær jafnvel samband við símsvara og fær villandi upplýsingar þar. Ég var þar með tillögu til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar, hvort ekki væri kominn tími á að ríkisstjórnin kæmi fljótlega á símsvara fyrir alla þá sem eru á biðlistum eftir aðgerðum á Íslandi. Þá gæti vélræn rödd svarað: Ef þú ert með Covid-19, ýttu á takka eitt, þú ert í forgangi. Ef þú ert barn á biðlista ýttu á takka tvö og þú ert ekki í forgangi. Ef þú ert að bíða eftir lífsnauðsynlegri aðgerð, ýttu á takka þrjú og þér verður sagt hvar þú ert á 200 manna biðlista. Ef þú ert á biðlista eftir að komast á biðlista, ýttu á takka fjögur og bíddu þangað til röðin kemur að þér. Símsvarinn heldur áfram og segir: Ef þú ert að bíða eftir sjúkraþjálfun eða tíma hjá talmeinafræðingi þá eru langir biðlistar þar vegna reglugerðarbreytinga og hafðu því samband eftir tvö ár.

Það er verið að valda fólki tjóni með því að hafa það á biðlistum og það sem er verra er að þetta á ekkert eftir að batna. Nú á t.d. Félag talmeinafræðinga 40 ára afmæli á þessu ári og komin upp sú staða að margir þeirra eru að fara á eftirlaun og líka sjúkraþjálfarar þannig að vandinn eykst. En lausnirnar eru kannski ekki á næsta leiti. Ég kem í næstu ræðu ítarlega inn á þetta.