151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:26]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér fannst ég merkja það hversu mjög forseti nýtur þessarar umræðu. Mig langaði til að segja sögu af konu sem er að útskrifast í vor úr sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands. Hún hefur fengið starfsþjálfun hjá sjúkraþjálfara með eigin stofu og hann langar til að ráða hana áfram til starfa. En hér lendir þessi kona á vegg. Ný breyting á reglugerð um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands felur í sér að sjúkraþjálfari þarf að hafa starfað sem slíkur í minnst 80% starfshlutfalli í tvö heil ár. Ákvæðið gildir ekki um þá sem eru þegar með samning við Sjúkratryggingar heldur eingöngu hina, þessa nýju sem óska eftir að komast nýir inn á skrá. Konan er með fimm ára háskólanám að baki, mastersgráðu og viðamikla starfsþjálfun en skjólstæðingar hennar munu þurfa að borga hærra verð fyrir sjúkraþjálfun hjá henni en hjá þeim sem útskrifuðust árinu áður. Nýútskrifaðir sjúkraþjálfarar munu því lenda undir í samkeppni við þá sem eru fyrir í stéttinni því að ekki munu þeir geta veitt þjónustu í tvö ár fyrir hærra verð en allir aðrir bjóða. Þeir þurfa því að fá vinnu hjá heilbrigðisstofnunum út þennan tilskilda tíma áður en þeir geta farið að starfa sjálfstætt.

Þá er spurningin: Er vinnu fyrir alla að fá hjá hinu opinbera? Getur heilbrigðisráðherra tryggt öllum 30 nýútskrifuðum sjúkraþjálfurum störf? Er æskilegt að lama einkageirann og senda alla í vinnu hjá ríkinu? Mætti ekki taka tillit til fjölbreytts áhugasviðs fólks sem sérhæfir sig í sjúkraþjálfun? Eru biðlistar ekki nægilega langir fyrir?

Staðan er nefnilega þannig að það eru langir biðlistar til að komast að hjá sjúkraþjálfara. Þeir gegna ómetanlegu starfi við endurhæfingu óvinnufærs fólks og við að draga úr nýgengi örorku, t.d. vegna bakmeiðsla. Þessi breyting hugsa ég að muni fyrst og fremst bitna á fólkinu í landinu sem ekki fær nauðsynlega þjónustu, fyrir utan auðvitað hið augljósa, (Forseti hringir.) að hún bitnar á þeim sem hafa sérhæft sig í þessu námi. Þannig að með þessum takmörkunum erum við komin á þann stað og að þeirri niðurstöðu að sum nauðsynleg þjónusta er niðurgreidd fyrir suma en ekki fyrir aðra.