151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:29]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að vekja máls á þessu efni og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni. Það sem mér finnst standa upp úr í umræðunni er annars vegar það hvað við erum sammála um að hér séum við að tala um tvær mjög mikilvægar stéttir í heilbrigðisþjónustunni, þ.e. sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga, en hitt ekki síður hversu mikilvægt er að samningar náist á milli aðila og það sem fyrst. Auðvitað má velta fyrir sér að þar hafi Covid áhrif og jafnvel það að samningarnir sem stendur fyrir dyrum að gera eru flóknari en þeir samningar sem hafa hingað til verið gerðir, en það breytir ekki því að það er mikilvægt að samningar náist. Hún hefur mjög verið uppi í umræðunni undanfarið þessi svokallaða tveggja ára regla sem menn hafa sagt vera ósanngjarna. Aðilar verða auðvitað að meta það í samningum sín á milli með hvaða hætti farið er með þessa þætti en sú leið sem hæstv. ráðherra benti á hér áðan, þ.e. að nýútskrifaðir geti í þessum tilvikum starfað við hlið, annaðhvort á ábyrgð eða undir eftirliti, reynds starfsmanns, getur væntanlega gengið. Ég held að sú leið sé mjög skynsamleg. Hún ýtir undir faglega ábyrgð og ýtir líka undir það sem hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson kom inn á hér áðan, að þessar starfsstéttir geti sjálfar valið sér faglegan vettvang eftir útskrift og hafi þá reynslu í hvoru tveggja, þ.e. að vinna á opinberum stofnunum og einkastofnunum eftir atvikum.

Ég ítreka það sem ég sagði áðan, herra forseti, það skiptir mestu máli að ná samningum sem fyrst þannig að þessi mikilvæga þjónusta komist sem fyrst í eðlilegt horf.