151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Við ræðum hér stöðu talmeinafræðinga og sjúkraþjálfara. Það hefur komið fram að víða um land eru langir biðlistar eftir þjónustu talmeinafræðinga. Staðan þar er að hundruð barna og unglinga eru á biðlistum eftir þessari þjónustu. Þetta kemur víða illa niður á þjónustu talmeinafræðinga úti á landi við börn og unglinga. Það er mjög mikilvægt að gripið sé snemma inn í þeirra vandamál og ef ekki er brugðist við snemma þá hefur það auðvitað áhrif á þroskamöguleika þessara barna og að þau geti átt eðlileg félagsleg samskipti við jafnaldra sína. Nýútskrifaðir talmeinafræðingar sem búsettir eru úti á landi þurfa oft að flytja í bæinn til að geta uppfyllt skilyrði rammasamnings Sjúkratrygginga og Félags talmeinafræðinga.

Herra forseti. Fréttir hafa verið að berast af því að hver fagstéttin á fætur annarri sem starfa á heilbrigðissviði á grundvelli samninga við ríkið kvarti sáran yfir samskiptum sínum við Sjúkratryggingar ríkisins. Þetta er ekkert nýtt, herra forseti. Við höfum óralanga biðlista eftir liðskiptaaðgerðum þar sem fólk er fremur sent utan í miklu dýrari aðgerðir heldur en að skipta við innlenda aðgerðaaðila. Við höfum áralanga sorgarsögu um samskipti ráðuneytisins við rekstraraðila hjúkrunarheimila þar sem nú er eðlilega þolinmæði margra sveitarfélaga brostin, enda höfðu sveitarfélögin oft greitt stórfé til rekstursins sem þó er á ábyrgð ríkisins. Þannig hleður heilbrigðisráðuneytið hvert götuvígið á fætur öðru gegn einkaframtakinu og öllum þeim sem voga sér að vera ekki á launaskrá hjá ríkinu, hvort sem um er að ræða frjáls félagasamtök, þjónustuveitendur á heilbrigðissviði eða fagaðila í stéttum sem eru með samninga við hið opinbera um þjónustu á sviði ráðuneytisins.

Herra forseti. Ráðherra verður að svara fyrir gangverk heilbrigðiskerfisins hér.