151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:33]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir þessa umræðu, sem er mjög þörf. Ég hef oftar en ekki staðið í þessum stól og staðið með heilbrigðisráðherra. Ég hef líka staðið með henni þegar kemur að því að fara vel með fé ríkissjóðs sem nýtt er til greiðslu þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Ég held við séum öll sammála um það. En í þessum málum talmeinafræðinga og sjúkraþjálfara er ég á öndverðum meiði við hæstv. ráðherra, að tveggja ára starfsreynsla í 80% hlutfalli sé nauðsynleg áður en sjúkraþjálfarar geta gert samning við Sjúkratryggingar Íslands. Það er mér frekar óskiljanlegt. Í kjördæmi mínu eru nokkrar stofur sjúkraþjálfara sem hafa farið mjög illa út úr þessu vegna veikinda eða ef sjúkraþjálfarar þurfa að taka sér frí frá vinnu af öðrum ástæðum. Dæmi eru um að jafnvel 40% sjúkraþjálfara á lítilli stofu úti á landi fari í frí en geti ekki fengið nýútskrifaðan sjúkraþjálfara til starfa vegna þess að reyndir sjúkraþjálfarar fást ekki á landsbyggðinni.

Ég hef mjög miklar áhyggjur af þjónustunni á landsbyggðinni, virðulegur forseti. Þetta hefur í för með sér að sjúkraþjálfurum fækkar, þjónustan versnar og biðlistarnir lengjast. Þetta er alvarlegt. Ég hef áhyggjur af því að með lengri biðlistum fjölgi þeim sem aldrei koma aftur til starfa.

Hæstv. ráðherra. Ég stend heils hugar með því að fara vel með skattfé, en þessi leið leiðir til lakari þjónustu. Það hefur verið hugsun okkar í hv. velferðarnefnd og í þinginu, og ég veit að við erum sammála um það, að við viljum bæta lífskjör landsmanna en ekki skerða þau.