staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að óska eftir þessari mikilvægu umræðu um tvær mikilvægar kvennastéttir. Það er ljóst að breytt reglugerð um endurgreiðslu á kostnaði sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga vinnur gegn nýliðun í greininni og leiðir jafnframt til verri þjónustu á landsbyggðinni. Þá er hætt við að þetta minnki áhuga íslenskra stúdenta á að leggja fyrir sig fögin og sömuleiðis, í tilfelli sjúkraþjálfara, að fleiri stofur telji sér nauðugan einn kost að ráða til starfa erlenda sjúkraþjálfara með starfsreynslu. Þetta er líka sérstök ráðstöfun í ljósi þess að það eru að öllum líkindum ekki nægjanlega mörg stöðugildi hjá stofnunum ríkisins til að ráða þennan fjölda nýútskrifaða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga til starfa, ekki nema ríkið ætli að láta af ráðningarbanni sem verið hefur víða í kerfinu, og bæta verulega í stöðugildafjöldann. Sérstaklega hef ég áhyggjur af þeim áhrifum sem þetta gæti haft á þjónustu sjúkraþjálfara á landsbyggðinni sem lengi hafa treyst á afleysingar og nýliðun. Þessi breyting mun auka á vandann þar við að fá sjúkraþjálfara til starfa. Þá er þetta mjög takmarkandi fyrir það unga fólk sem vill flytja aftur heim eftir að námi lýkur. Það sama gildir um talmeinafræðinga.
Herra forseti. Sjúkraþjálfarar fá starfsleyfi sitt frá landlækni eftir fimm ára háskólanám. Ég verð að taka undir orð formanns Félags sjúkraþjálfara þegar hún spyr: Hvers vegna ákveður ráðherra að takmarka starfsleyfi sem landlæknir hefur þegar gefið út? Það er óskiljanlegt, sérstaklega þegar litið er til þess að nú þegar eru miklir biðlistar eftir þjónustu bæði sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga. Var ekki eitt af loforðum ríkisstjórnarinnar að gera heilbrigðisþjónustuna ódýrari og aðgengilegri? Vandséð er hvað þessar ráðstafanir gera annað en að lengja biðlista, sérstaklega á landsbyggðinni, skapa atvinnuleysi meðal nýútskrifaðra og setja stofurekstur í uppnám. En það er kannski einmitt meiningin.