staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Virðulegi forseti. Eins og ég kom inn á í máli mínu áðan sjáum við ítrekað hversu mikilvægt það er að beita snemmtækri íhlutun í heilbrigðiskerfinu og fyrirbyggja framtíðarvandamál. Ég fæ illa skilið hvernig velferðarríkið Ísland getur ekki gert betur en svo að börn þurfi að bíða í hátt í tvö ár eftir að fá bót meina sinna þegar kemur að einhverju eins og talmeini. Það getur verið mjög íþyngjandi fyrir barn að burðast með slíkt mein ómeðhöndlað í langan tíma og tvö ár er langur tími í lífi barns, heldur betur. Þetta getur haft áhrif á félagslegan þroska og fleiri fleti daglegs lífs hjá barni.
Samningar takast ekki og biðlistar lengjast. Við sjáum þetta hvað varðar umrædda stéttir en líka fleiri stéttir í heilbrigðiskerfinu. Það er á borði hæstv. ráðherra að semja við þessa aðila, að tryggja að nýliðun geti átt sér stað í heilbrigðiskerfinu á Íslandi, að það séu jákvæðir hvatar til þess að koma til Íslands að loknu námi og að koma í veg fyrir framtíðarvandamál. Það hlýtur að vera réttur barns á velferðarlandinu Íslandi að geta fengið meðferð hjá talmeinafræðingi eða sjúkraþjálfara. Þetta er bagalegt ástand og við sjáum líka það sama vera að gerast hjá sérgreinalæknum.
Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur haft mikið á sinni könnu vegna heimsfaraldursins og það er skiljanlegt en nú erum við væntanlega að sjá einhvers konar bót í máli þar. Núna þarf því að ráðast á þessa biðlista í íslensku heilbrigðiskerfi, hvernig sem það er gert. Auðvitað þarf að verja skattfé íslenskra ríkisborgara vel og vandlega og vanda til verka en stundum þarf að horfa út fyrir ramma ríkisins til að gera það.