151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

[14:39]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málum. Hér ræðum við m.a. sjúkraþjálfun og leiðir til að bæta starfsumhverfi, bæði til góðs fyrir sjúkraþjálfun og notendum til bata. Í því samhengi vil ég benda á að Sjúkratryggingar Íslands ákváðu á síðasta ári að fela Ríkiskaupum að bjóða út sjúkraþjálfun á höfuðborgarsvæðinu. Sú ákvörðun á sér stoð í lögum um opinber innkaup sem sett voru samkvæmt tilskipun frá Evrópusambandinu árið 2014. Lögin eiga að tryggja skilvirkni og hagkvæmni á nýtingu á opinberu fé. En á heilbrigðis- og félagsþjónusta að falla undir þessi lög? Norðurlöndin hafa tekið upp lög um opinber innkaup en þau hafa sett sérstaka umgjörð um heilbrigðis- og félagsþjónustu. Sem dæmi má nefna Noreg en þar fjalla lögin um útboð á heilbrigðis- og félagsþjónustu og segja m.a. að setja skuli reglugerð um sérstöðu heilbrigðis- og félagsþjónustu. Leggja skuli áherslu á fjölbreytni, gæði og samfellu og þátttöku notenda þjónustunnar.

Virðulegi forseti. Við eigum og megum fara sömu leið og nágrannaþjóðir okkar í þessum efnum. Þetta ætti ekki að vera erfitt fyrir fámenna þjóð. Núverandi ríkisstjórn hefur breikkað greiðsluþátttökukerfið þannig að fleirum var gert kleift að nýta sér þjónustu sjúkraþjálfara. Það er mikilvægt fyrir virkni og heilsu einstaklinga ásamt því að vera í samræmi við áherslu í stjórnarsáttmálanum á sviði forvarna og lýðheilsu. Við getum ekki nálgast viðkvæma málaflokka líkt og heilbrigðis- og félagsþjónustu eins og við nálgumst vegaframkvæmdir. Aðrar sérreglur verða að gilda um slíka þjónustu. Að fara slíka leið væri okkur til bóta.