staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Herra forseti. Ég þakka fyrir góðar umræður hér í dag. Ef einhvern rauðan þráð má finna í þeim er hann sá að þessi staða er ekki í lagi. Mér þykir miður að hæstv. ráðherra hafi eytt dýrmætum tíma hér áðan í að leiðrétta meintan misskilning hjá mér. Ég þekki vel muninn á samningi og greiðsluþátttökureglugerð, það eru aðrir en sú sem hér stendur sem eru uppteknir af þeim formlegheitum á kostnað þjónustu við sjúklinga. Og talandi um formlegheit: Ábyrgðin á þessari stöðu liggur ekki hjá Sjúkratryggingum Íslands. Hún liggur ekki hjá samningsaðilum þeirra. Hún liggur hjá ríkisstjórn Íslands. Vaxandi biðlistar eftir þjónustu talmeinafræðinga og sjúkraþjálfara hafa neikvæð áhrif á fjölda fólks á öllum aldri sem bíður í lengri tíma eftir mikilvægum úrbótum sem varða lífsgæði þess.
Það er líka full ástæða til að hafa áhyggjur af neikvæðum áhrifum biðlista eftir þessari þjónustu á heilbrigðiskerfið í heild. Við vitum að ef þjónusta þessara fagstétta er veitt tímanlega dregur verulega úr þörf fólks eftir dýrari og flóknari heilbrigðisþjónustu þegar fram líða stundir og öfugt. Álag á kerfið er ekki síst vegna þess að þangað mætir fólk sem hefur ekki tímanlega fengið úrlausn sinna mála, ekki hefur verið brugðist við í tíma.
Herra forseti. Ef þetta snýst ekki um enn einn slaginn við sjálfstætt starfandi fagaðila, hvað þá? Faglegu rökin eru enn ónefnd. Ef þetta er fyrst og síðast spurning um fjármögnun þá hlýtur þessi staða að vera vísbending um forgangsröðun þar sem fyrirliggjandi ráðstafanir og endurhæfing lenda einfaldlega aftast í röðinni. Þetta er óboðleg staða, hver sem ástæðan er. Ég kalla eftir breytingum og það sem fyrst.