staða sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir umræðuna. Aðeins hér í lokin, ég held að það sé mikilvægt að geta um eflingu heilsugæslunnar og fjölgun sjúkraþjálfara á vettvangi heilsugæslunnar og nýsamþykkta endurhæfingarstefnu sem var löngu tímabær, vinnu sem hafin er varðandi uppbyggingu teymisvinnu fyrir þau sem búa við langvarandi verki, óháð búsetu, endurhæfingarstefnu sem segir okkur að við eigum að byggja upp endurhæfingarteymi í öllum landshlutum og fréttir af nýjasta og fyrsta endurhæfingarteyminu sem þegar er búið að byggja upp við Heilbrigðisstofnun Austurlands, sem er þverfaglegt og mannað endurhæfingarlækni, sjúkraþjálfurum, félagsráðgjafa og iðjuþjálfa. Þetta teymi hefur hafið störf og markmiðið er að við getum verið með teymi af þessu tagi um allt land.
Ég geri ekki ráð fyrir því að hv. þingmaður og málshefjandi og fleiri sem hér hafa verið að ræða stöðuna, ætlist til þess að ráðherrann semji sjálfur við veitendur heilbrigðisþjónustu. Ég hef a.m.k. ekki heyrt að það sé markmiðið. Við höfum búið þannig um í lögum að Sjúkratryggingar Íslands sjái um þetta. Við gerum heldur ekki ráð fyrir, er það, virðulegi forseti, að fjármagnið sé ótakmarkað. Við viljum að það sé með einhverju móti þannig að við sem kaupendur þjónustunnar höfum einhverja upphæð til þess að kaupa þessa tilteknu þjónustu fyrir. Þá þurfum við að setja einhver viðmið um gæði, magn og árangur og kostnað þjónustunnar. Þetta veit hv. þingmaður og þetta er samningsatriði. Það er ekki þannig, (Gripið fram í.) virðulegi forseti, meðan við erum með einhvers konar gjaldskrá í gildi, að það sé vísbending um hvað samningur kemur til með að fela í sér. Þegar hv. þingmaður heldur því fram er hann að drepa málinu á dreif. Við erum með takmarkað fjármagn og rammasamningur eins og sá sem er núna í gildi reisir engar skorður við því hversu mikið fer úr ríkissjóði í þessa tilteknu þjónustu. Ég hef ekki sem heilbrigðisráðherra leyfi til þess að opna ótakmarkað á ríkissjóð.