ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Herra forseti. Fáein orð frá mér um það sem snýr sérstaklega að Alþingi í þessu efni. Þar er fyrst til að taka að Alþingi undirbjó móttöku skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis með því að stofna sérstaka nefnd, þingmannanefnd, sem mánuðinn á undan bjó sig undir það verkefni að taka við afurðinni. Sú nefnd vann mikið starf á árinu 2010 og skilaði sjálf skýrslu og lagði fram tillögu til þingsályktunar um úrbætur og ályktun Alþingis um þetta efni sem samþykkt var einróma 28. september 2010. Ef dregnar eru saman í örfá orð meginniðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem sneru að Alþingi má segja að þær hafi verið að auka þyrfti sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu, leggja bæri meiri áherslu á eftirlitshlutverk þingsins og auka fagmennsku við undirbúning löggjafar. Þingmannanefndin sjálf kom með allmargar ábendingar í sinni skýrslu og þær eru að hluta til teknar upp í þingsályktuninni. Þar var í fyrsta lagi lagt til að þingmenn settu sér siðareglur, að það þyrfti að styrkja eftirlitshlutverk þingsins, tryggja rétt þingmanna til upplýsinga og aðgengi að faglegri ráðgjöf, huga vel að stöðu stjórnarandstöðu á Alþingi, að Alþingi yrði gefin árleg skýrsla um framkvæmd þingsályktana og mála sem Alþingi vísar til ríkisstjórnar. Jafnframt lagði þingmannanefndin til að sett yrðu almenn lög um rannsóknarnefndir. Er skemmst frá því að segja að allt hefur þetta gengið eftir.
Með breytingu á þingskapalögum árið 2011 var eftirlitshlutverk Alþingis aukið til mikilla muna og styrkt með tilkomu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem hefur vel skilgreint hlutverk og sterkt umboð til eftirlits af hálfu Alþingis í þessum efnum. Siðareglur alþingismanna voru seint um síðir settar 2016, lög um rannsóknarnefndir sett eins og áður kom fram og ýmislegt fleira mætti tína til. Þá er ánægjulegt að geta þess að á þessu kjörtímabili hefur þessu verki undið fram og Alþingi verið verulega styrkt að þessu leyti og er það m.a. gert með stuðningi af ákvæðum í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Þannig hafa allmargir sérfræðingar í viðbót verið ráðnir inn á nefndasvið Alþingis, lagaskrifstofa Alþingis hefur verið styrkt, aðstoðarmönnum þingflokka fjölgað og búið mun betur að þingflokkunum. Til umfjöllunar er nú í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd nýtt frumvarp til endurskoðunar á þingskapalögum þar sem haldið er áfram á þessari braut. Þar er t.d. lagt til að tekið verði af skarið um það að eftirlitshlutverk Alþingis nái einnig til svokallaðra sjálfstæðra stjórnvalda og að upplýsingum til Alþingis sem óskað er eftir frá ráðuneytum og opinberum stofnunum skuli skilað refjalaust og það án kostnaðar frá Alþingi því að það hefur meira að segja hent að menn hafa óskað eftir greiðslu fyrir gögn sem Alþingi hefur beðið um í þágu síns eftirlitsstarfs.
Það er því ánægjulegt að þessi ágæta skýrsla hæstv. forsætisráðherra birtir mjög jákvæða niðurstöðu hvað það varðar að almennt hefur verið brugðist við ábendingum og tillögum rannsóknarnefndar Alþingis og við getum fyrir hönd Alþingis sagt að við höfum einnig lifað upp til þess sem við sjálf settum okkur að gera árið 2010. Þessi tíu ár hafa því nýst vel íslenskri stjórnsýslu og ekki síst fjármálaumhverfinu til að bæta lagaumhverfið, efla stjórnsýsluna og reyna með öllum tiltækum ráðum að fyrirbyggja hamfarir af því tagi sem við urðum fyrir 2008.
Það er líka ánægjulegt að sjá að mælingar á trausti sýna að það er almennt á uppleið hvað varðar stofnanir og stjórnkerfið, þar á meðal nýtur Alþingi nú meira trausts og var á dögunum að fá sína bestu mælingu frá því fyrir hrun.