ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um skýrslu forsætisráðherra um ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslu Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Skýrslan er mjög umfangsmikil, heilar 400 blaðsíður, og verður sennilega aldrei mest lesna bók landsins — ég held að þetta sé frekar bók en skýrsla. Þar er að finna ítarlega greiningu á því hvaða ábendingar komu fram í skýrslunum sem beindust að stjórnvöldum. Samkvæmt skýrslunni hefur verið brugðist við velflestum ábendingum. Sem dæmi um úrbætur eru nefnd lög um opinber fjármál, ný lög um Stjórnarráð Íslands, endurskipulagning fjármálakerfisins, auknar áherslur á siðareglur, úrbætur á verkferlum stjórnvalda o.fl.
Eflaust má finna ýmis dæmi í skýrslunni þar sem brugðist hefur verið við ábendingum án þess að pólitísk sátt ráði um viðbrögðin. Ekki þarf að leita lengra en til atkvæðagreiðslunnar áðan um frumvarp um varnarlínu um fjárfestingarbankastarfsemi — við erum alls ekki sammála um hvernig skuli tryggja nægilegan aðskilnað milli viðskiptabankastarfsemi og fjárfestingarbankastarfsemi. Það hefði verið betra að fá yfirlit yfir fjölda ábendinga og þá hve mörgum ábendingum hefði verið brugðist við og hve mörgum hefði ekki verið brugðist við. Eftir að hafa leitað í skjalinu hef ég tekið saman hversu oft skýrsluhöfundar telja að ekki hafi verið brugðist við ábendingum. Úr rannsóknarskýrslu er það ábending nr. 23 á bls. 55, nr. 85 á bls. 106, nr. 87 á bls. 108, nr. 158 á bls. 167, nr. 230 á bls. 253 og nr. 249 á bls. 283. Úr skýrslu um Íbúðalánasjóð eru ábendingar nr. 39, 40 og 41 á bls. 325, nr. 46 á bls. 328 og í skýrslu um fall sparisjóðanna ábending nr. 21 á bls. 354, nr. 30 á bls. 360 og 35 á bls. 365. Það eru því a.m.k. 13 tilvik þar sem ekki hefur verið brugðist við ábendingum að mati skýrsluhöfunda. Þá eru einhver tilvik þar sem aðeins er brugðist við ábendingum að hluta til.
Í ákveðnum tilvikum hefur ekki verið brugðist við vegna þess að ábendingarnar eiga ekki lengur við, t.d. vegna þess að búið er að leggja Íbúðalánasjóð niður. Í sumum tilvikum hefur ekki verið brugðist við vegna þess að ábendingarnar samrýmast ekki stefnumótun, svo sem ábending nr. 249, um að draga þurfi skýr mörk á milli þeirra verkefna sem eðlilegt sé að fela opinberum aðilum annars vegar og einkaaðilum hins vegar. Sú ábending kom til vegna þess hve áberandi tilteknir aðilar í viðskiptalífinu voru þegar kom að styrkveitingum til menningarviðburða, menningarstofnana og félagasamtaka. Skýrsluhöfundar telja að það myndi fara gegn menningarstefnu stjórnvalda að takmarka stuðning viðskiptalífsins við samfélagsleg eða menningarleg verkefni.
Athyglisverðar ábendingar. Í fyrsta lagi: Ekki hefur verið brugðist við ábendingum um að setja þurfi skorður við því að æðstu stjórnendur fjárfestingarfélaga stundi fjárfestingar í eigin nafni, ábending nr. 23. Þetta er ámælisvert. Skýrsluhöfundar virðast ekki telja þörf á slíkum breytingum vegna almennra ákvæða um hagsmunaárekstra, t.d. í lögum um hlutafélög og lögum um fjármálafyrirtæki.
Flokkur fólksins vill ganga lengra í þessum efnum og höfum við m.a. lagt til að settar verði frekari reglur um stjórnendur lífeyrissjóða svo að komið sé í veg fyrir að þeir stundi viðskipti í eigin reikning með hlutabréf eða skuldabréf í félögum tengdum viðkomandi lífeyrissjóði.
Í öðru lagi: Ekki hefur verið brugðist við ábendingum um aðkomu forseta Íslands að viðskiptum og tengslamyndunum íslenskra viðskiptamanna og félaga. Þar eru nefnd nokkur dæmi þess að forseti Íslands ritaði erlendum stjórnmálamönnum og þjóðhöfðingjum fyrir hönd íslenskra aðila og fór fögrum orðum um viðkomandi aðila.
Bent er á það í skýrslunni að forseti telji að huga megi að því að setja lög um embætti forseta Íslands og undir það má taka. Forseti Íslands gegnir vissulega mikilvægu hlutverki í kynningu á landi og þjóð en það er mikilvægt að embættið fylgi fyrir fram ákveðnum reglum til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og til að tryggja að embættið stundi ekki bréfaskrif í þágu tiltekinna aðila án þess að kynna sér fyllilega viðskiptasögu þeirra o.s.frv. Þá má velta því upp hvort það sé yfir höfuð eðlilegt að þjóðhöfðingi skrifi meðmælabréf.
Að lokum: Skýrsla þessi sýnir að við getum brugðist við og lært af mistökum. Hún sýnir einnig hve óundirbúin við vorum fyrir efnahagshrunið. Við höfum lært af mistökum fortíðarinnar en við erum ekki útskrifuð úr þeim skóla. Heimsfaraldurinn hefur svo sannarlega sýnt okkur að við getum aldrei tryggt okkur í bak og fyrir. Við þurfum að halda áfram að endurskoða lagaumhverfið og verkferla með það að leiðarljósi að draga úr skyndilegum efnahagslegum áföllum sem ávallt bitna verst á fólkinu í landinu.
Skjaldborgin sem í hruninu var slegin um bankana var ekki slegin um heimilin. Á annan tug þúsunda heimila voru tekin af fólki, af fjölskyldum. Uppgjör vegna þessa hefur ekki farið fram. Hagsmunasamtök heimilanna hafa krafist þess að farið verði í uppgjör á þeim málum. Það er grafalvarlegt mál fyrir fjölskyldur að hafa misst heimili sín vegna bankahruns, vegna þess að óábyrgir bankamenn fóru hamförum og ollu stórkostlegu tjóni í efnahagslífinu. Þetta uppgjör þarf að fara fram. Við verðum að klára uppgjörið, fyrr held ég að þjóðin verði ekki sátt. Þegar því er lokið verðum við líka að sjá til þess að þeir sem fóru illa út úr þeim viðskiptum fái uppreisn æru.