ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Herra forseti. Ég þakka þessa mikilvægu umræðu og skýrsluna. Hún er ágætlega unnin þó að það sé svo sem ekkert nýtt í henni. Mikið hefur verið gert í því að bæta regluverk fjármálakerfisins eftir bankahrunið og ég fagna því að sjálfsögðu. Af mörgu er að taka en tíminn er mjög skammur. Ég vil fyrst víkja að ábendingu nr. 43 á bls. 74 í skýrslunni þar sem fjallað er um lán til forstjóra fjármálafyrirtækja og kauprétti í viðskiptabönkum. Búið er að setja strangari reglur í þeim efnum, sem er að sjálfsögðu mikilvægt, en við sáum það t.d. í þessum mánuði að Arion banki gerði umfangsmikla kaupréttaráætlun fyrir stjórnendur og starfsmenn sína upp á tæpa 2 milljarða kr. Hér er um kauprétti og kaupauka að ræða. Kaupauki er einfaldlega fínna orð yfir bónusa og bónusar mega samkvæmt reglum nema 25% af árslaunum. Hæstv. fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson hefur hins vegar verið talsmaður þess að hækka það hlutfall hér á landi upp í 100%.
Kaupaukarnir hjá Arion banka byggjast á því að bankinn nái meiri hagnaði en aðrir bankar. Með öðrum orðum er verið að innleiða áhættusækni til að geta skilað betri arðsemi. Það getur haft í för með sér afleiðingar fyrir samfélagið allt eins og við þekkjum öll á eigin skinni frá því að bankarnir féllu 2008. Íslenskir bankar stækkuðu afar hratt í kjölfar einkavæðingar þeirra og áhættusæknin var mikil. Þessir kaupréttarsamningar og væntanlegir bónusar hjá Arion banka eru vissulega í samræmi við reglur FME. Það sem hræðir hins vegar í þessum efnum er að ef áform Sjálfstæðisflokksins ganga eftir og báðir ríkisbankarnir verða einkavæddir þá mun það örugglega gerast að þrýst verður verulega á að gera breytingar á regluverkinu og sýnt fram á nauðsyn þess að lækka eiginfjárhlutfall bankanna og sumir stjórnmálamenn munu spila með, alveg eins og þeir spila með við sölu á Íslandsbanka í miðjum faraldri. Tilgangurinn er síðan sá að geta greitt út meiri arð til eiganda. Því fylgir áhætta fyrir samfélagið ef eiginfjárhlutfall bankanna er lækkað eins og eigendur bankanna í einkaeigu vilja gera. Það verður að vera til nægilegt fé í bönkunum til að geta tekist á við komandi sveiflur o.s.frv. Næst koma svo væntanlega kröfur um að geta greitt himinháa bónusa í bönkunum. Allt eru þetta kunnugleg stef og fjármálaráðherra er vissulega í klappliði bankamanna þegar kemur að því að hækka bónusana.
Maður spyr óneitanlega: Fyrir hvað er verið að greiða bónusa í bönkunum? Eru stjórnendur bankanna að finna upp á einhverju nýju? Nei, svo er ekki. Þar er einfaldlega verið að færa til peninga, færa peninga frá lífeyrissjóðum og eignafólki, og fyrir það fá sumir háar bónusgreiðslur. Einnig er rétt að hafa í huga að það hefur gerst, þrátt fyrir nýtt regluverk, að fjármálafyrirtæki hafi reynt að fara í umfangsmeiri kauprétti og bónusa en reglur heimila og það hefur verið kallað nýjum nöfnum eins og B-hlutabréf.
Herra forseti. Tíminn er naumur. Þrátt fyrir að í þessari skýrslu sé verið að tíunda breytingar á regluverki í kjölfar bankahrunsins þá er íslenska ríkið enn langt á eftir við innleiðingu reglugerða EES hvað varðar fjármálamarkað. Þannig er kerfið sundurleitt og ekki eins vel búið undir ytri áföll. Nefna má sem dæmi svokallaðar MiFID-reglur en þær lúta að viðskiptaháttum við kaup og sölu hlutabréfa og voru innleiddar í Evrópu eftir fjármálahrunið 2008. MiFID II reglurnar sem lúta að verðbréfasjóðum voru innleiddar í Evrópu 2018. Þær hafa ekki verið innleiddar hér að fullu og því þarf að svara hver sé staðan á innleiðingu þeirra og tengdra reglugerða.
Herra forseti. Ef tíminn leyfði hefði ég viljað fara í margt annað eins og heimildir starfsmanna í stjórnsýslunni til að eiga viðskipti á markaði. (Forseti hringir.) Hvað hefur breyst í þeim efnum? Geta starfsmenn ráðuneyta enn átt viðskipti með hlutabréf og skuldabréf? Hvar standa þær reglur, svo dæmi sé tekið? Ýmsu er ósvarað hvað það varðar (Forseti hringir.) en ég þakka fyrir umræðuna og þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir ræðuna og þessa skýrslu.