ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Virðulegi forseti. Helstu gerendur í hruninu, úr óvinafylkingunum, eru sammála um a.m.k. eitt, að hrunið sé öðrum að kenna. Það er þá ýmist hinni fylkingunni og skapgerðarbrestum einhverra tiltekinna einstaklinga þar eða þá utanaðkomandi öflum að kenna. Hvorugt er rétt, eins og sést glögglega af rannsóknarskýrslu Alþingis og þeirri ágætu eftirfylgjuskýrslu sem hér er til umræðu.
Hrunið varð vegna veikleika í okkar eigin kerfum, fjármálakerfinu og stjórnmálakerfinu og hinum kerfunum, því að þetta var um leið hrun siðferðis, sjálfsmyndar og menningar. Þegar alþjóðleg bankakreppa skall svo á reyndust kerfin hjá okkur vera sérlega viðkvæm, með hörmulegum afleiðingum fyrir heimilin í landinu og þjóðarbúskapinn í heild. Við vorum eins og sjómennirnir í Smugunni, sagði einn af helstu umsvifamönnunum í viðtali á sjaldgæfri einlægnistund; fjármálakerfið sjálft bauð upp á fjárglæfraeftirlit, það var orðið skammaryrði, og litið var á stjórnmálamenn sem gagnrýndu glæfrana eins og nokkurs konar veislugikki.
Afleiðingin varð sú að traustið hrundi á stofnunum samfélagsins, þar á meðal þessari stofnun hér. Þótt traustsmælingar bendi til þess að það sé að rétta úr kútnum þá eru ýmsir þeir veikleikar enn til staðar sem dregnir voru fram í rannsóknarskýrslunni á sínum tíma. Þessi skýrsla hér er mikilvægt gagn í þeirri viðleitni að endurvekja það traust og byggja það upp, sem er lýðræðisleg nauðsyn.
Bygging skýrslunnar er þannig að raktar eru ábendingar og því svarað hvort brugðist hafi verið við þeim og síðan er það mat rökstutt. Skýrslan sýnir að við höfum sem samfélag margt lært af hruninu. En hún sýnir líka að þetta eru matsatriði, eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson vék hér að áðan. Mig langar að nota tækifærið til að víkja ögn að einni af þessum ábendingum á blaðsíðu 261–262. Þar er vísað til ábendinga í skýrslu vinnuhóps um siðferði og starfshætti, sem var þess efnis að íslensk stjórnmálamenning einkenndist af foringjaræði, þar sem oddvitar flokkanna leika lykilhlutverk, og það auki hættuna á gerræðislegum ákvörðunum. Þetta sé réttlætt með því að stjórnmálaforingjarnir endurnýi umboð sitt hjá kjósendum reglulega, en þess á milli hafi þeir meira og minna frjálsar hendur.
Einnig er nefnt að dómur kjósenda virki illa vegna þess að flokkarnir ganga flestir óbundnir til kosninga. Kjósendur vita ekki hvernig samsteypustjórnir verða myndaðar eftir kosningar. Í því sambandi er áréttað að aðgreining framkvæmdarvalds og löggjafarvalds sé eitt af meginatriðum lýðræðislegrar stjórnskipunar og þinginu beri að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu.
Hið ramma foringjaræði og óhefta meirihlutaræði sem hér ríkir — sigurvegarinn hirðir pottinn — veikir aðhaldshlutverkið, að því er kemur fram í þessari skýrslu. Niðurstaðan af því er að taka þyrfti stjórnarskrána til skipulegrar endurskoðunar til að treysta grundvallarinnviði lýðræðissamfélagsins og skýra betur meginskyldur, ábyrgð og hlutverk valdhafa. Svo er spurt, eins og um aðrar ábendingar: Hefur verið brugðist við þessari ábendingu? Svarið er já, og svo kemur nokkuð langt mál um hið krókótta endurskoðunarferli stjórnarskrárinnar frá hruni. Ítarlegt svar og ágætt, en ég veit samt ekki alveg hvort það verðskuldar jáið sem á undan fer.
Virðulegi forseti. Er verið að taka stjórnarskrána til skipulegrar endurskoðunar til að treysta grundvallarinnviði lýðræðissamfélagsins og skýra betur meginskyldur, ábyrgð og hlutverk valdhafa? Það er nú það. Manni verður eiginlega hugsað til ljóðs eftir Þórarin Eldjárn, sem er svona, með leyfi forseta:
„Ég vil vera jákvæður en verð oftast júkvæður.“
Þetta er svolítið jú-legt svar: Já, jú, jú. Þegar maður flettir þessari skýrslu er mikið um já. Þarna eru mörg já en þau reynast mörg, þegar betur er að gáð, vera meira: Jú. Jú, jú. Kannski. Jafnvel: Tja. Jafnvel: Nja.