151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.

352. mál
[16:13]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegur forseti. Ég er enginn sérstakur talsmaður rannsóknarskýrslna eins og þær hafa verið framkvæmdar hér á landi, þær eiga sér reyndar ekki sögu langt aftur í tímann heldur bara eftir fall bankanna árið 2008. Ég er enginn sérstakur talsmaður þess að menn eigi að eyða miklum tíma og kröftum og peningum í það. Það er ekki vegna þess að ég haldi ekki að það geti ekki komið fram gagnlegar ábendingar þegar menn leggjast yfir hlutina og líta til baka. Skárra væri það nú ef menn gætu ekki ratað á einhverjar ágætar ábendingar. Ég held að í rannsóknarskýrslu Alþingis, öllum þeim rannsóknarskýrslum, hafi komið fram margar gagnlegar ábendingar um það sem betur mætti fara í okkar ágæta landi og það sama má svo sem segja um þá skýrslu sem hér liggur fyrir, sem er skýrsla skýrslnanna, yfirferð yfir ákveðna þætti í þessum rannsóknarskýrslum öllum. En afstaða mín til þessara skýrslna almennt er sú að þær hafa verið framkvæmdar í fyrsta lagi í andrúmslofti ákveðinnar geðshræringar. Hér var samþykkt á Alþingi í desember 2008, stuttu eftir fall bankanna, að fram skyldi fara rannsókn með fyrstu rannsóknarskýrslunni. Það tók tvö ár og rúmlega það að framleiða þá skýrslu, hún kom út árið 2010. Á sama tíma var lagst í gerð fleiri rannsóknarskýrsla. Allur þessi kostnaður minni mig að hafi slagað upp í 1,5 milljarða, ef ekki meira. Umfang rannsóknarskýrslnanna allra er hátt í 5.000 blaðsíður í 20 bindum og hér liggur fyrir okkur enn ný skýrsla upp á 400 síður. Ég hef ekki tölu yfir það hvað þessi skýrsla hefur kostað en eitthvað hefur hún kostað. Það væri ágætt að fá það fram, þá vinnu sem hefur farið fram og kostnað við hana.

Eins og ég segi er gallinn við þessar skýrslur auðvitað andrúmsloftið sem þær hafa verið gerðar í. Mig rekur minni til þess, bara sem eitt dæmi um það sem ég gæti nefnt sem kannski lýsandi fyrir andrúmsloftið, að biskup Íslands hafi lagt það til við allar kirkjur landsins, þegar rannsóknarskýrsla Alþingis kom út um orsakir og aðdraganda að falli bankanna, að sú skýrsla myndi liggja frammi í öllum kirkjum landsins, hvað þá meira, og myndi þá mögulega víkja út hinni bókinni sem þar liggur þótt það hafi kannski ekki verið tekið fram hjá biskupi. En slík var geðshræringin í þessum málum. Það er kannski ekki heppilegt ef menn vilja setjast yfir mál með skipulögðum hætti að það sé gert í slíku umhverfi.

Þessi skýrslubeiðni Pírata endurspeglar líka það sem mér finnst galli við svona rannsóknarskýrslur. Það brennur við að það sé miklu meira formið en efnið sem skipti máli. Það er vont þegar menn festast í forminu og þessu kerfi okkar. Nú er mjög mörgum stjórnmálamönnum mjög tamt að nefna að það þurfi að bæta kerfin okkar, þetta snúist allt um kerfin. Þessi skýrsla er því marki brennd og aðrar rannsóknarskýrslur. Ég held að Píratar hafi nefnt, ég las um það fréttir, ég veit ekki hvort það er komið inn á þingið, að það þurfi að fara fram rannsókn á sóttvarnaaðgerðum og öllum aðgerðum í tengslum við heimsfaraldurinn sem nú geisar. Mér finnst það líka sama marki brennt. Menn eru uppteknir af forminu auðvitað. En ég verð ekki vör við annað en að menn hafi veigrað sér við að taka til máls, taka þátt í umræðu, hafa frumkvæði að umræðu, meira að segja hér á þinginu um þessi mál, þessi sami flokkur, núna í heilt ár. En allt að einu þá finnst mönnum mikilvægt að henda í rannsóknarskýrslu um málið.

Mér fannst merkilegt að sjá í danska þinginu, þar sem stjórnskipanin er nú bara mjög svipuð og hjá okkur á Íslandi, að þar var í fyrsta sinn hrundið af stað rannsókn með útgáfu skýrslu fyrir nokkrum vikum. Það var reyndar út af sóttvarnaaðgerðum og aðgerðum í tengslum við heimsfaraldur. En það var í fyrsta sinn sem þingið danska lagði í þá vinnu að gera svokallaða rannsóknarskýrslu. Ég held reyndar að við gætum lært ýmislegt af þeirri skýrslu þótt ég ætli í sjálfu sér ekki að leggjast gegn því að menn fari yfir og horfi aftur í tímann þegar kemur að uppgjöri eða einhvers konar a.m.k. yfirferð yfir sóttvarnaaðgerðir og aðgerðir aðrar í tengslum við heimsfaraldur. En mér finnst skipta miklu meira máli að menn taki þátt í umræðum um málið þegar þær eiga sér stað. Það sama má segja um rannsóknarskýrslu Alþingis um bankahrunið og alla þá eftiráspekinga sem koma og eru rifjaðar upp í þessu öllu saman í tengslum við það. Það rifjast t.d. upp fyrir mér að umboðsmaður Alþingis benti á, og hann var reyndar einn af skýrsluhöfundum rannsóknarskýrslunnar á sínum tíma, að það hefði verið brotalöm við innleiðingu evrópskra reglna og það hefði ekki verið reynt að laga þær reglur að því umhverfi sem hér væri á landi. Þetta á eflaust enn þá við að mínu mati. En það breytir því ekki að það voru fáir (Forseti hringir.) sem töluðu fyrir því að aðrar reglur ættu að gilda hér á landi en í Evrópu.

Virðulegur forseti. Ég geng á tíma samflokksmanns míns með heimild hans.

Það breytir því ekki að enginn talaði fyrir því á þessum tíma. (Forseti hringir.) Af þessu tilefni er rétt kannski að nefna það að íslenska stjórnkerfið bjó svo vel að í landinu starfaði allan útrásartímann algerlega sjálfstætt embætti sem hafði m.a. þá skyldu að láta vita af því ef meinbugir væru á gildandi lögum og það er t.d. embætti umboðsmanns Alþingis. En í lögum um hann segir að ef hann verður þess áskynja að meinbugir séu á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum þá skuli hann tilkynna það Alþingi, hlutaðeigandi ráðherra eða sveitarstjórn. Þetta tek ég bara sem dæmi um eftiráspekina sem kemur fram í umræðu um þessi mál.

Nú átta ég mig ekki á klukkunni en ef marka má forseta þá er tími minn liðinn. Hér hefur auðvitað ekki gefist nokkur einasti tími til að ræða kannski það sem skiptir mestu máli sem er hvað menn ætla að gera við þessa skýrslu, enn og aftur. Menn geta verið að hengja sig í þessi mál langt fram eftir öldinni.