ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.
Herra forseti. Ég tek undir mikilvægi þessarar skýrslu sem er um aðrar eldri og lengri skýrslur og tel umræðu um hana nauðsynlega, fyrir hana ber að þakka. Það er óvinnandi vegur að ræða svo viðamikla skýrslu hér á einni eða tveimur klukkustundum, herra forseti, en ein af ábendingum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis laut að því að vanda betur til lagasetningar á þeim málefnasviðum sem skýrslan fjallar um. Þar er m.a. nefnt að sérstök skrifstofa hafi verið sett á laggirnar í forsætisráðuneytinu sem fari með gæðaeftirlit við undirbúning stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, og lagafrumvarp fari þannig í gegnum alls 21 fasa. Hér er eins og endranær allt kapp lagt á að framkvæmdarvaldið sé enn betur í stakk búið við undirbúning og samningu laga, eins og það hefur reyndar haft með höndum lengi og mikið lagt undir. Ég sakna þess hversu lítið hefur í raun verið gert hér á löggjafarsamkomunni sjálfri í þessum efnum. Ég hefði talið fé vera vel varið við að stórefla lagaskrifstofu þingsins til aðstoðar þingnefndum og þingmönnum.
Skýrslan sem við ræðum hér er 369 blaðsíður. Ég verð að játa að ég náði ekki alveg að ljúka lestrinum. En til gamans sló ég upp leitarorðinu heimili. Þá komu upp fimm leitarniðurstöður sem innihéldu orðið heimili á öllum þessum tæplega 400 blaðsíðum en engin þeirra kom inn á erfiðleika heimilanna í kjölfar bankahrunsins, fimm orð en ekkert þeirra var um aðgerðir til að laga stjórnsýsluna hvað varðar heimilin í landinu.
Fyrsta leitarniðurstaðan var um að Heimili og skóli hefðu gefið út bækling. Sú niðurstaða kom upp tvisvar. Önnur leitarniðurstaðan var um heimilisfræði þar sem fjallað var um námskrá í skólum. Þriðja leitarniðurstaðan var um lögheimili þar sem fjallað var um upplýsingar vegna eignarhalds í fjölmiðlum. Þar sagði að það væri almennt svo að þeir sem rækju heimili legðu meira á sig til að standa í skilum en eigendur fyrirtækja. Herra forseti. Það er svo sannarlega rétt.
Miðflokkurinn hefur unnið að því og hyggst leggja fram skýrslubeiðni á næstu dögum um að unnin verði skýrsla um afleiðingar falls bankanna á heimilin í landinu þar sem tekið verði saman með ítarlegum hætti hvernig heimilin og fjölskyldur komu út úr hruni bankanna, bæði fjárhagslegar og félagslegar afleiðingar fyrir heimilin og fjölskyldurnar, þótt ekki væri nema vegna þeirrar staðreyndar að meira en 10.000 fjölskyldur, menn, konur og börn, voru borin út af heimilum sínum í kjölfar bankahrunsins. Þannig verði m.a. rannsakaðar orsakir þess að fjármálafyrirtækjum var veitt því sem næst óheft heimild til að bera út þúsundir manna. Þar verði einnig greint til hvaða ráðstafana stjórnvöld gripu til að verja heimilin, í hverju þær ráðstafanir voru fólgnar, hvernig þær reyndust og hverjum þær gögnuðust, ef einhverjum. Þessi skýrsla myndi bera heitið Rannsóknarskýrsla heimilanna, eins og Hagsmunasamtök heimilanna hafa lengi kallað eftir. Þar yrði bankahrunið gert upp á forsendum heimilanna í landinu. En það verk er óunnið, herra forseti.