151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

ábendingar sem varða stjórnsýsluna í rannsóknarskýrslum Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna 2008.

352. mál
[16:25]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég get ekki sagt að ég sé almennt aðdáandi rannsóknarskýrslna og sérstaklega ekki rannsóknarskýrslna sem eru gerðar við mjög sérstakar aðstæður, þegar þjóðin var í uppnámi eftir mikið áfall þegar fjármálakerfi heimsins hrundi. En alltaf má hafa eitthvert gagn af skýrslum og í rannsóknarskýrslu Alþingis eru ýmsar ábendingar, einkum sem varða lagaumhverfið og atriði sem snúa að stjórnvöldum, einkum varðandi fjármálakerfið hvað lagaumhverfið snertir og svo hvað betur megi fara í stjórnsýslunni.

Sumar þessar ábendingar eru gagnlegar. Það er nánast óhjákvæmilegt þegar menn skoða mál mjög vel. Aðrar voru að mínu viti byggðar á hreinum misskilningi. Á það kannski einkum við um siðfræðikafla skýrslunnar og svo eru aðrar ábendingar mjög umdeildar og jafnvel bara úreltar í dag. En maður upplifir það hér, eftir að hafa hlustað á þessa umræðu, að þingmenn láta enn eins og bankahrunið hafi verið eitthvert séríslenskt fyrirbæri, jafnvel heimatilbúið á Íslandi, og ekki haft áhrif neins staðar nema hér og hér hafi allt verið í molum, hér hafi stjórnsýslan verið í molum, lögin í molum, stjórnarskráin í molum. Svo var ekki og kannski vegna þess að við erum að mörgu leyti snjallari en margir aðrir eða við gátum unnið okkur út úr þessu miklu hraðar vorum við sennilega búin að ná bestu lífskjörum í öllum heiminum strax á árinu 2016, en aðrar þjóðir eru enn að glíma við afleiðingarnar og ekkert hefur gengið og ekkert breyst.

Ég held að við þurfum að komast út úr þessu og við gerum það ekki með því að biðja um skýrslu eins og hér var gert. Ég tek ekki undir með mörgum sem hafa sagt að það sé mikið gagn að þessari skýrslu sem við höfum hér til umfjöllunar. Hún segir mér ekki neitt, er þannig séð gagnslaus og kostnaðurinn mikill. Miklu skynsamlegra hefði verið að hafa beiðni af þessu tagi afmarkaðri þannig að einhver sérstök atriði hefðu verið til umfjöllunar. Það gæti verið gagnlegt í einstökum tilvikum. Skýrslubeiðni af þessu tagi setur hálft Stjórnarráðið í vinnu mánuðum saman með ærnum tilkostnaði en segir okkur ekki neitt. Ég get alveg lofað ykkur því að að þessum degi loknum mun ekkert verða meiri umræða um þetta og enginn mun velta einu né neinu fyrir sér. Ég tel að því fé sem hefur verið varið í þessa skýrslu hefði verið betur varið í aksturskostnað fyrir þingmenn til að sinna kjósendum sínum. Ég er viss um að peningarnir væru betur nýttir með þeim hætti.

Að lokum vil ég bara segja að við erum alltaf, á hverjum degi hér, í hverri viku, í hverjum mánuði, að reyna að bæta lagaumhverfið, bæta framkvæmdarvaldið, bæta stjórnsýsluna. Þetta er verkefni sem er stöðugt og við erum alltaf að vinna að því. Við lærum auðvitað alltaf af reynslunni. Við lærum af reynslunni af bankahruninu. Heimurinn hefur lært af því. Við höfum farið í mjög miklar breytingar sem öllum eru ljósar og þarf enga skýrslu um. Lykilatriðið er að við kunnum að læra af reynslunni.