hagkvæmisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum. Dalir og Dalasýsla mega muna fífil sinn fegri í þessum málum, fyrst við tölum um íbúakönnun. Dalirnir eru með fallegustu sveitum landsins og líka þeim gróðursælustu. Hér áður fyrr voru mörg stór býli og merkar sögur til úr Dölunum, bæði af skáldum og stórbændum og ég veit ekki hvað fleira. Þetta er sorglegt. En við getum lagað þetta með því að bæta samgöngur, eins og fram hefur komið. Það er einhvern veginn alltaf sama skilyrðið fyrir uppbyggingu á landinu, þ.e. bættar samgöngur. Samgönguskilyrði á innanverðu Snæfellsnesi og inni í Dölum eru algjörlega fyrir neðan allar hellur. Ég er alveg sannfærður um að þessi íbúakönnun fékk þessa niðurstöðu að stórum hluta af því að samgöngumál eru í ólestri. Það er erfitt fyrir Dalamenn að sækja sér heilbrigðisþjónustu, t.d. á sjúkrahúsið í Stykkishólmi og annað slíkt, þannig að það má örugglega kenna samgöngumálum um það.
Að halda veginum opnum — hann er ekki inni á kortinu hvað varðar snjóruðning eða viðhald, eins og hann væri ef hann væri í betra ástandi. Þá þyrfti náttúrlega ekki að þjónusta hann eins mikið. Þannig að vegurinn er bara lítið notaður á veturna út af því hvernig ástandið er.