starfshópur um útgáfu öruggra opinberra skilríkja.
Forseti. Ég veit það ekki, en sá grunur læðist að mér að kannski séum við hv. þingmaður bara ekki sammála um endanlegt markmið. Ég væri t.d. alveg rosalega ánægður ef starfshópurinn leiddi til einhvers stærra og meira, sem mér heyrðist hv. þingmaður helst óttast. Ég vona að starfshópurinn leiði til þess að gefin verði út örugg opinber rafræn skilríki. Það er markmið mitt og annarra sem leggja fram þessa þingsályktunartillögu og starfshópurinn er ákveðið skref í þá átt. Ég hef áður gert þetta. Ég lagði t.d. fram tillögu um starfshóp sem ynni að því að stofna ráðgjafarstofu innflytjenda. Það varð síðan að ráðgjafarstofu fyrir innflytjendur. Ég vona að þetta gerist þannig.
Ég skildi hv. þingmann á stundum, í máli hennar áðan, eins og rafræn skilríki væru eitthvað sem kæmi ef starfshópurinn yrði að veruleika og myndi vinna sína vinnu. Rafræn skilríki eru til í dag. Hv. þingmaður lýsti samskiptum sínum við banka. Ef starfshópurinn væri búinn að vinna vinnuna sína og hefði stofnað rafræn skilríki hins opinbera hefði hv. þingmaður ekki lent í þessum vandræðum með bankann. Þá hefði hv. þingmanni staðið til boða skilríki á vegum ríkisins en hefði ekki þurft að kaupa þau af einkafyrirtæki. Jú, ef hv. þingmaður vill alls ekki vera með rafræn skilríki þá er það ekki góð þjónusta af hálfu umrædds fyrirtækis, sem ég veit ekki hvert er, að bjóða ekki upp á það. En eins og ég segi, ég hef heyrt mýmörg dæmi um fólk sem er ekki með þau skilríki og lendir í vandræðum.
Það sem ég er að segja, forseti, er að við erum með rafræn skilríki í dag. Annars vegar eru þau gefin út, og þá er ég að tala um auðkennislykilinn, á vegum hins opinbera, þ.e. Íslandslykil sem er því miður ekki nógu góður af því að hann gildir ekki alls staðar. Hins vegar eru skilríki gefin út af einkafyrirtæki. Ég vil að hið opinbera gefi út þessi skilríki svo að þau standi öllum íbúum landsins til boða sem þess óska.