151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

starfshópur um útgáfu öruggra opinberra skilríkja.

260. mál
[17:53]
Horfa

Flm. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Ég kem hingað aftur af því að mér láðist að nefna það í flutningsræðu minni að þessi tillaga er nú lögð fram, eins og ég kom inn á, í sjötta sinn og hún hefur verið í nokkur síðustu ár og er einnig núna lögð fram af þeim hv. þingmönnum sem sitja í Íslandsdeild Norðurlandaráðs auk annarra þingmanna sem ekki sitja þar. Auk mín eru flutningsmenn hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir, Anna Kolbrún Árnadóttir, Oddný G. Harðardóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.

Forseti. Ástæðan fyrir því að þetta er á forræði Íslandsdeildarinnar, eða þeirra hv. þingmanna sem þar sitja, er að það hafa verið hugmyndir uppi um og vinna að því innan Norðurlandanna og Norðurlandaráðs að gefa mögulega út einhvers konar sameiginleg rafræn skilríki sem hjálpa þegnum eða íbúum sem fara þar á milli landa og nýtast þeim á milli landa. Í greinargerðinni er sérstaklega komið inn á þessa vinnu. Ég biðst forláts á að hafa láðst að minnast á þetta í fyrri ræðu en því er þá skilmerkilega til haga haldið.