minning þeirra Íslendinga sem fórust í seinni heimsstyrjöldinni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að flytja okkur þetta mál. Mig langar bara að undirstrika það sem kom fram hjá þingmanninum, hve ríkar tilfinningar eru í þessu. Þetta er líf fólks sem við erum hér að tala um. Af því að þingmaðurinn nefndi fjölskyldurnar þá er jafnvel spurning hvort einhverjir eftirlifendur séu af einhverjum af þeim skipum sem fórust. Nú þekki ég það ekki, einhverjir komust af en það er langt um liðið. En þegar talið berst í greinargerðinni að sérfræðingunum sem á að útfæra þetta í samráði við eru nefndar tvær fræðigreinar, bara í dæmaskyni veit ég. En ég held að við verðum samt að nefna fleiri en sagnfræðinga og safnafræðinga. Til þess að það náist almennilega utan um tilfinningarnar, sem eðlilega eru í þessu, þyrfti þá ekki að fá einhverja listamenn líka? Þyrftum við ekki að nálgast verkefnið þannig að minningunni verði búinn varanlegur sess í einhvers konar listaverki sem nær að fanga tilfinningarnar og minninguna? Það er örugglega hægt að nefna fleiri fræðigreinar en mig langaði að nefna þennan eina hóp bara rétt til að gefa þingmanninum tækifæri til að koma inn á það í þessari fyrri umræðu.