151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

háskólar og opinberir háskólar.

269. mál
[18:31]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um háskóla og lögum um opinbera háskóla. Hugmyndafræðin á bak við frumvarpið gengur út á það að gera fleirum fært að stunda háskólanám án þess að til þurfi einhvers konar undanþágur, þ.e. að gera háskólunum það sjálfum fært að ákveða hvaða hæfniskröfur eru gerðar fyrir það nám sem þeir bjóða upp á. Í dag er tilgreint að stúdentspróf þurfi til að sækja nám í háskólum nema samkvæmt einhvers konar undanþáguákvæði. Reynslan er sú að þeir eru yfirleitt svona aftast í röðinni sem þurfa slíka undanþágu og eiga þar af leiðandi takmarkaða möguleika til að stunda háskólanám. Með þessu frumvarpi er lagt til að lagagreinin hljóði frekar þannig að leggja skuli heildstætt mat á umsækjendur og meta einstaklinga sem hafa lokið stúdentsprófi, sveinsprófi eða öðru fag,- starfs- eða listnámi.

Mælt hefur verið fyrir þessu máli nokkrum sinnum og það fengið einhverja umfjöllun í nefnd þótt lítil hafi verið. Hugmyndafræðin er fyrst og fremst sú að opna dyr háskólanna fyrir nemendur sem hafa lokið ýmiss konar námi, einnig í ljósi þess að við erum alltaf að auka fjölbreytileikann í námsflórunni okkar, sem betur fer, vegna þess að einstaklingarnir eru fjölbreyttir og eiga að hafa val um að sækja fjölbreytt nám. Þetta er líka spurning um að vinna frekar með iðn- og verknám og listnám og auka fjölbreytileika þeirra sem stunda háskólanám. Hugmyndafræðin gengur ekki út á það að allir þurfi endilega að fara í háskóla en á seinni árum er það orðið þannig að fólk leggur meira og meira upp úr því að sækja nám alla sína ævi. Það er ekki lengur þannig að fólk mennti sig bara til eins starfs og stundi það til æviloka heldur kýs fólk í auknum mæli að skipta um starfsvettvang einu sinni og jafnvel oftar á starfsævinni. Þannig kann það að vera mjög eðlilegt að þeir sem hafa starfað í sinni grein fyrst eftir iðnnám geti síðar bætt við sig háskólanámi og starfað við það eða öfugt, þeir sem hafa stúdentspróf og háskólapróf geti síðar farið í einhvers konar iðnnám. Sem betur fer sjáum við slíka þróun og mjög mikla aukningu á umsóknum í iðn- og verknám, enda hefur það lengi verið talið hamla íslensku skólakerfi hversu lítil aðsókn hefur verið í iðn- og tæknigreinar.

Mig langar að segja í þessu samhengi að frumvarp þetta var fyrst flutt af núverandi hæstv. dómsmálaráðherra, sem þá var hv. þingmaður, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og má segja að ég hafi fengið málið í arf frá henni þegar hún tók við sem ráðherra. Það kemur fyrir að þingmannamál fái framgang í þessum sal þó að það sé ekki ofboðslega algengt. Það lítur samt sem áður út fyrir að þetta mál eða þessi hugmynd hafi kannski fengið byr undir báða vængi því að ekki er svo langt síðan hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi, það var reyndar bara núna 18. febrúar sl., það var lagt fram 16. febrúar, og er þar af leiðandi stjórnarfrumvarp sem hefur sambærilega meiningu. Það er um breytingar á þessum sömu lögum og ber heitið aðgangsskilyrði. Þar er horft til þess að inntökuskilyrðin séu að viðkomandi hafi staðist lokapróf frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi. Það er sem sagt aðeins ítarlegar rammað inn en þetta frumvarp. Ég held að það fari ágætlega á því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi bæði þessi mál til umfjöllunar á sama tíma og fái um þau umsagnir. Ég hef ekki náð að kynna mér umsagnir um stjórnarfrumvarpið í samráðsgáttinni en ég hygg að það hafi verið samið í samráði við a.m.k. háskólana. Ég veit að Háskóli Íslands hafði sent inn umsögn um þetta mál á sínum tíma og hafði ákveðnar áhyggjur af því þegar verið væri að meta nemendur frá öðrum löndum út frá samstarfssamningum okkar við Norðurlöndin og annað. Það var reyndar tekið á því í greininni um opinberu háskólana, að horfa til þess sem viðurkenndir háskólar á sambærilegu sviði erlendis væru að gera. Ég hygg að hv. allsherjar- og menntamálanefnd sé vel til þess fallin að fara yfir bæði þessi mál og finna út hver besta leiðin er.

Stóra málið er auðvitað það að opna háskólana og viðurkenna iðnmenntunina og verknámið gagnvart þeim möguleika að sækja sér meiri menntun síðar. Það þarf enginn að segja mér það að til að mynda smiður eða rafvirki sem rekið hefur fyrirtæki, er jafnvel með meistarapróf í sinni grein og hefur þar af leiðandi stundað töluvert nám til að ná í meistararéttindi, sé verr til þess fallinn að fara í tæknifræðinám eða viðskiptafræðinám en einhver sem er nýútskrifaður úr framhaldsskóla af einhverri allt annarri braut. Ég held því að það sé mjög eðlilegt að háskólarnir sjálfir hafi tækifæri til að setja eigin skilyrði um hvað þeir fari fram á og með frumvarpinu væri það auðvitað hvatning til háskólanna að horfa til starfsreynslu og iðn- og verknáms sérstaklega.

Mig langar í þessu samhengi að segja að ég naut þess að stunda mitt háskólanám í gamla Tækniskólanum, hann bar það heiti til langs tíma, fékk svo heitið Tækniháskólinn og sameinaðist að lokum Háskólanum í Reykjavík. Ég stundaði þar viðskiptafræðinám en þar var líka boðið upp á alls konar tæknifræðinám. Ég man að ég valdi þennan skóla sérstaklega vegna þess að umgjörðin var allt öðruvísi og andrúmsloftið í skólanum í ljósi þess að þar var töluvert af fólki sem var að koma aftur inn í skóla eftir að hafa stundað vinnu úti á atvinnumarkaðnum og prófað ýmsa hluti. Það var það sem heillaði mig við námið, að geta stundað nám með fólki með fjölbreyttari bakgrunn. Ég held að þetta sé ekki bara tækifæri fyrir þá sem stundað hafa iðnnám, verknám, listnám, til að koma inn í háskólana heldur eru líka gríðarleg tækifæri í því fyrir háskólana að fá fólk með fjölbreyttan bakgrunn inn í skólana. Ég held að það gefi ákveðna dínamík í kennslu og skipti þar af leiðandi alla aðila miklu máli.

Ég ætla ekki að hafa þetta miklu lengra. Hér fylgir ágætisgreinargerð með frumvarpinu en ég ætla ekki að lesa hana enda liggur hún fyrir í þingskjölum. Ég vona svo innilega að við munum á þessu þingi klára þetta mál, hvort sem það er þetta frumvarp eða stjórnarfrumvarpið sem um ræðir eða einhvers konar sambland af þessu hvoru tveggja, alla vega að við opnum fyrir það með lögum að háskólarnir geti haft sín inntökuskilyrði, við séum ekki að njörva það niður í lagatexta að stúdentspróf þurfi til að stunda háskólanám.