151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

skipun starfshóps um merkingu kolefnisspors matvæla.

281. mál
[18:40]
Horfa

Flm. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um skipan starfshóps um merkingu kolefnisspors matvæla. Meðflutningsmenn á þessu máli eru hv. þingmenn Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Tillagan felur í sér að fela ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála að skipa starfshóp sem móti tillögur um hvernig tilgreina megi kolefnisspor matvæla. Í starfshópnum eigi sæti fulltrúar Bændasamtakanna, Samtaka verslunar og þjónustu, Neytendasamtakanna og umræddra ráðuneyta. Starfshópurinn skili síðan skýrslu með tillögum til ráðherra eigi síðar en 1. september 2021.

Tildrög þessa máls eru þau að á 149. þingi beindi ég fyrirspurn til ráðherra um hvort ráðuneytið eða ráðherrann hefði áform um frekari vinnu á þessu sviði eða hvort slík vinna væri hafin. Fram kom í svari ráðherra að starfandi væri starfshópur sem væri m.a. að skoða þetta og í kjölfarið kom skýrsla frá starfshópnum. Í niðurstöðum hans, sem voru birtar í ítarlegri skýrslu 9. september sl., kemur fram í níundu tillögu að mikilvægt sé að halda áfram að hvetja til merkinga og að aðilum tengdum stjórnvöldum verði skylt að merkja vörur með þessum hætti. Eins kemur fram að áfram þurfi að hvetja til merkinga, annarra þá væntanlega, og skapa jákvæða hvata.

Þá er í þeirri skýrslu, eins og raunar hefur komið fram í máli mínu áður, bent á samhengið á milli áforma stjórnvalda um kolefnishlutleysi og loftslagsmarkmiða stjórnvalda og svo þess að neytendum sé gert kleift með auðveldum og einföldum hætti að átta sig á því hvaða kolefnisspor þeir stíga, ef maður getur orðað það svo, þegar þeir kaupa eða neyta vöru eða þjónustu. Fram kemur í áðurnefndri skýrslu að nú þegar eru til einhverjar aðferðir til að meta kolefnisspor matvæla þótt þær séu ekki enn sem komið er fullkomnar. Meðal annars þess vegna er þetta lagt fram í þingsályktunartillöguformi, flutningsmenn gera sér grein fyrir því að undirbúningsvinna þarf að fara fram áður en hægt er að leggja fram frumvarp eða einhverjar reglur um þetta. Ég tel hins vegar mjög mikilvægt að ríkisvaldið stígi fyrstu skrefin í þessu og gefi þannig tóninn fyrir það hvaða leið við ætlum að fara og þar liggur kannski meginástæðan fyrir því að málið er flutt.

Ég tel líka að merkingar eins og þessar geti verið mjög mikilvægar fyrir framleiðslu hér innan lands og geti til að mynda skipt verulegu máli í samkeppni við erlendar vörur sem koma þá væntanlega til landsins með einhverju aukakolefnisspori þó ekki væri nema bara út af flutningi. Þetta gerir þá neytendum kleift að velja kolefnisvænni vörur, ef það er orð, og hjálpar þeim smátt og smátt að breyta neysluvenjum. Hér innan lands hefur þegar verið unnin nokkur vinna og Bændasamtökin hafa til að mynda hafið starf í þessa veru og sett sér markmið um að kolefnisjafna matvælaframleiðslu sína, sem er afar mikilvægt. Breyting sem þessi gæti í rauninni stutt við slíka vegferð og ýtt undir hana og gert hana að öllu leyti jákvæðari.

Fyrir okkur sem ferðamannaland getur þetta líka skipt miklu máli vegna þess að við viljum væntanlega sýna þá ímynd að við séum samfélag sem taki þessi mál virkilega alvarlega og það væri skemmtilegt ef við yrðum eitt af fyrstu löndunum í heiminum til að setja upp einhvers konar litakóða á matvæli með tilliti til þess hversu stórt eða smátt kolefnisspor þau hafa. Eins og ég nefndi áðan á eftir að vinna dálítið af undirbúningsvinnunni en ég tel mikilvægt að við sem löggjafarsamkunda sendum framkvæmdarvaldinu þau skilaboð að við viljum að þessari vinnu verði haldið áfram og það sé gert með þessum hætti. Eins og ég nefndi í upphafi er með samþykkt tillögu eins og þessarar í rauninni kominn enn einn stuðningsflöturinn sem stjórnvöld geta haft gagnvart loftslagsmarkmiðum sínum og jafnframt enn ein skilaboðin til samfélagsins alls um að þetta sé mál sem varði okkur miklu og við ætlum að halda áfram á þeirri vegferð að reyna að gera betur í þessum málum.

Að lokinni þessari umræðu, herra forseti, geri ég ráð fyrir að málið fari til hv. atvinnuveganefndar.