151. löggjafarþing — 61. fundur,  2. mars 2021.

varamaður tekur þingsæti.

[13:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Olga Margrét Cilia, 1. varamaður á lista Pírata í Reykv. s., hafi boðað forföll og muni því víkja sem varamaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Í gær, mánudaginn 1. mars, tók því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 2. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Katla Hólm Þórhildardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.