151. löggjafarþing — 61. fundur,  2. mars 2021.

refsingar fyrir heimilisofbeldi.

[13:25]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ræða þetta. Síðustu ár höfum við einmitt verið að reyna að styrkja réttarvernd þeirra sem lent hafa í ofbeldi í nánum samböndum. Margt hefur breyst til hins betra í þessum efnum, en ég er sammála hv. þingmanni um að skoða þarf hvort túlkunin á þessu sé einfaldlega of þröng í lögum. Lögreglan fylgir því mjög vel eftir með ýmsum verklagsbreytingum hjá sér til að tryggja betur vernd þessara þolenda, t.d. að geta tekið gerandann af heimilinu í staðinn og að geta fengið nálgunarbann á 24 klukkutímum. Verklag lögreglu gjörbreyttist af því að þetta var sett á oddinn hjá þáverandi lögreglustjóra og núverandi ríkislögreglustjóra. Ég hef einmitt átt samtal við ríkislögreglustjóra um þessi mál og við höfum talað um hvernig hægt væri að skoða þetta að nýju. Er kominn tími á að skoða það sem breytt hefur verið og hvað hefur reynst vel og hvað hefur ekki verið í samræmi við það sem lagt var upp með? Sú vinna og það samtal er í gangi milli mín og lögreglunnar og ég býst fastlega við því að við munum fylgja því eftir varðandi þetta og svo fleiri aðgerðir er varða vernd gegn ofbeldi.