nýsköpun.
Herra forseti. Á vef Stjórnarráðsins segir, með leyfi forseta:
„Nýsköpun er undirstaða framfara og aukinnar verðmætasköpunar í samkeppnisdrifnum, alþjóðavæddum heimi.“
Við í Viðreisn tökum heils hugar undir og þreytumst seint á að minna á að atvinnulíf okkar er of einhæft og viðkvæmt fyrir sveiflum. Trekk í trekk verða áföll sem rekja má til þess. Gallinn er hins vegar sá að við erum fljót að gleyma liðnum áföllum þegar betur árar. Það hefur leitt til þess að nýsköpun er frekar beitt sem skammtímalausn en langtímalausn. Það er röng nálgun. Við í Viðreisn hræðumst að hið sama muni gerast núna. Vissulega hefur ríkisstjórnin gert margt gott til að styðja við nýsköpun, tækni og þróun. Margt af því er hins vegar tímabundið átak vegna niðursveiflunnar. Gott dæmi um það eru bráðabirgðaákvæði sem var bætt við lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem fólu í sér tímabundna hækkun endurgreiðslna vegna rannsókna og þróunar. Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram frumvarp sem gerir þá bráðabirgðaráðstöfun varanlega. Þetta er stuðningur sem er almennur en ekki sértækur. Hann krefst þess að fyrirtækin sjálf fjármagni leiðina í upphafi en færir þeim mikilvægt svigrúm til að taka aðeins meiri áhættu með fjárfestingu í rannsóknum og þróun. Fyrirtækin eflast, auka fjölbreytni í atvinnulífinu og skila þannig ávinningi til samfélagsins, framförum, sköttum og atvinnusköpun. Ég spyr hæstv. ráðherra: Mun hann styðja þessa viðleitni okkar í Viðreisn? Mun hann styðja frumvarpið um það að gera þessi bráðabirgðaákvæði varanleg?