151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

störf þingsins.

[13:05]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Ég hef fylgst af áhuga með áhugaverðri fundaröð sem Efling, ASÍ og Starfsgreinasambandið stóðu að um stöðu erlends fólks á vinnumarkaði. Þetta er málefni þar sem við þurfum að mínu viti að láta meira til okkar taka. Þetta er fólkið sem kom til landsins og keyrði áfram hagvöxt og verðmætasköpun í samfélaginu og þetta er fólkið sem að einhverju leyti stendur höllustum fæti núna í því atvinnuástandi sem kórónuveiran hefur skapað. Atvinnuleysi í þessum hópi er gríðarlega mikið og nægir í þeim efnum að horfa til Suðurnesja og það þarf að taka sérstaklega á því svæði. En ég hef ekki síst verið að fylgjast með áherslunni sem verkalýðshreyfingin hefur verið með á réttindi þessa fólks því að það er gríðarlega mikilvægt að við tryggjum þau réttindi, eins og allra á vinnumarkaðnum, og komum í veg fyrir kjarasamningsbrot og launaþjófnað gagnvart þessum hópi. Við viljum geta státað okkur af vinnumarkaði hvar réttindi eru ekki einungis góð heldur sé tryggt að allir, óháð stétt eða stöðu, njóti þeirra. Þetta þurfum við að taka gríðarlega alvarlega þegar við förum núna í uppbyggingarfasann, þegar við sköpum það framtíðarhagkerfi og vinnuumhverfi sem við viljum sjá þegar við reisum okkur við úr kreppunni, ekki síst í ferðaþjónustunni. Það þarf að huga að réttindum allra og að allir, óháð stétt eða stöðu, njóti þeirra því að, forseti, erlent starfsfólk er ekki einnota.