151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

störf þingsins.

[13:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Geimvísindastofnun Evrópu, á ensku kölluð European Space Agency, auglýsir nú laust starf geimfara. Það má spyrja: Hvað eigum við að segja við börnin okkar þegar þau dreymir um að verða geimfarar? Ja, við segjum þeim að þau þurfi að byrja á því að verða útlendingar. Þau þurfi að búa í landi sem tekur þátt í geimvísindastarfi eins og hjá Geimvísindastofnun Evrópu. Þau gætu farið til Lúxemborgar þar sem búa u.þ.b. 620.000 manns og þó er þar blómlegur geimiðnaður og -menntun, sér í lagi, eða þau gætu farið til Möltu, þar sem búa 520.000 manns, og orðið ríkisborgarar þar og mögulega orðið geimfarar einhvern tímann í framtíðinni.

En þrátt fyrir að við séum ekki í þessu samstarfi er ýmislegt geimvísindastarf á Íslandi. Ég vil nefna þrjá hluti þó að ég gæti nefnt fleiri. Í fyrsta lagi er á Íslandi nú þegar starfrækt Geimvísinda- og tækniskrifstofa Íslands, á ensku Space Iceland, en það er þjónustuskrifstofa fyrir geimvísinda- og tækniiðnaðinn á Íslandi sem á í samstarfi við aðila úti um allan heim til þess að draga hingað erlenda fjárfestingu og samstarf í íslenskum geimiðnaði með yfir 40 samstarfsaðila nú þegar, innan lands og utan. Sú stofnun var stofnuð í kjölfar þingsályktunar Alþingis árið 2016 um að hefja umsóknarferli við Geimvísindastofnun Evrópu.

Í öðru lagi vil ég nefna ESA Copernicus Masters, sem er alþjóðleg samkeppni um lausn vandamála með því að nýta gögn um jarðtengingu. Íslenska fyrirtækið Svarmi sigraði þá keppni árið 2018 með verkefninu Myriad, sem er verkefni um sjálfvirka dróna.

Í þriðja lagi vil ég nefna það að Skyrora, skoskt eldflaugafyrirtæki, skaut upp tilraunaskoti á Íslandi þann 16. ágúst 2020, því fyrsta af vonandi þremur. Er það í fyrsta sinn sem skotið er upp geimflaug á Íslandi í meira en 50 ár.

Virðulegi forseti. Ég gæti talið upp ýmislegt fleira, t.d. möguleika á því að útvíkka EGNOS-leiðsögukerfið eða söguleg tengsl Íslands við Apollo-verkefnið. En ég vil ljúka því að segja að Ísland á ekkert minna erindi í geimvísindastarf en aðrar þjóðir (Forseti hringir.) eða í annað alþjóðlegt samstarf á sviði vísinda og tækni. Í iðnaðinum í kringum geimvísindi eru gríðarleg tækifæri sem Alþingi hefur þegar lýst yfir vilja til að grípa. (Forseti hringir.) Ég vona innilega að ríkisvaldið sjái þessi tækifæri líka.