151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

störf þingsins.

[13:28]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er mánuður fyrir ríkisstjórnina að leggja fram sín mál og ég vil hvetja hana til þess að gera það, ekki síst þau sem snerta efnahag og atvinnulíf landsmanna. En það er alveg ljóst að nú eru ákveðnir flokkar þegar byrjaðir að blása í frelsislúðrana þrátt fyrir að hafa sýnt lítið annað en forsjárhyggju, íhaldssemi og stjórnlyndi á þessu kjörtímabili. Og af hverju segi ég þetta? Af því að nú er þessi tími sem við, sem höfum einhverja reynslu hér á þingi, missum frá okkur þessi litlu mál sem skipta samt svo miklu máli, þessi litlu mikilvægu frelsismál sem hafa beðið allt of lengi. Margir skrifa um mikilvægi þeirra og skreyta sig með þeim á samfélagsmiðlum og víðar. En þegar kemur að því að klára málið gerist því miður ekki neitt.

Dómsmálaráðherra trommaði upp með netverslun á áfengi sem varð síðan að máli um sölu á framleiðslustað. Það er vissulega frelsismál í einhverjum skilningi en það er bara mjög lítið og útþynnt frelsismál. Ég get nefnt önnur dæmi. Mannanafnanefnd, það mál felldu ríkisstjórnarflokkarnir hér, þar með talið Sjálfstæðisflokkurinn. Lausasala lyfja, við í Viðreisn lögðum fram ákveðið skref, frelsisskref, í að heimila sölu ákveðinna tegunda lyfja í matvöruverslunum eins og við þekkjum víða erlendis; það var fellt. Frelsi á leigubílamarkaði; það kemst ekki áfram. Áfengi í verslanir, frelsi í neytendamálum og svo aðförin mikla að serranóskinkunni svo að margt fleira sé talið hér.

Ég vil hins vegar benda á efni og mál sem er mér ofarlega í huga og það er hið náttúrulega CBD-fæðubótarefni við alls kyns kvillum. Ég tel mikilvægt að við náum að klára það frelsismál til fulls. Við erum búin að heimila leyfi til viðskipta með iðnaðarhampinn en við þurfum að leyfa núna full viðskipti með fæðubótarefni, hvort sem þau eru í formi olíuhylkja eða matvöru.

Að því sögðu vil ég undirstrika, virðulegur forseti, að Viðreisn mun koma með breytingartillögur við mál dómsmálaráðherra sem felur m.a. í sér að við munum fara fram á að þingið heimili netverslunina sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa fram til þessa (Forseti hringir.) komið í veg fyrir að þingið greiði atkvæði um. Við munum tryggja að þingið fái frelsisskrefin a.m.k. rædd hér á þingi.