samgönguúrbætur á norðanverðum Tröllaskaga.
Virðulegur forseti. Með Strákagöngum við Siglufjörð, sem voru opnuð 1967, og Múlagöngum í Ólafsfjarðarmúla, sem voru opnuð 1990, voru tryggðar þess tíma heilsárssamgöngur við þéttbýlisstaðina Siglufjörð og Ólafsfjörð. Með opnun Héðinsfjarðarganga árið 2010 varð svo til heilsársvegasamband milli þéttbýlisstaðanna ásamt því að Siglufjörður var tengdur við Eyjafjarðarsvæðið. Það má því segja að heilsárssamgöngur séu tryggðar á norðanverðum Tröllaskaga. Engu að síður hafa ýmsar framkvæmdir verið skoðaðar sem gætu aukið öryggi á þessum leiðum.
Á kaflanum um Almenninga á Siglufjarðarvegi er hætta á jarðskriði og berghlaupum. Sú hætta hefur verið kortlögð. Á Ólafsfjarðarvegi, á kaflanum frá Dalvík að Múlagöngum, er snjóflóðahætta á mörgum stöðum. Þá eru bæði Múlagöng og Strákagöng mjó og tæknilega úrelt. Bæði göngin eru byggð áður en núgildandi reglur um öryggi í jarðgöngum tóku gildi og það á sérstaklega við um Strákagöng. Ýmsar framkvæmdir eða aðgerðir hafa verið til skoðunar til að auka öryggi samgangna á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi. Á þeim kafla Siglufjarðarvegar sem liggur um Almenninga hefur orðið vart við jarðskrið á um 6 km löngum kafla sem nær frá vegamótum við Skarðsveg að Almenningsnöf. Kortlögð hafa verið þrjú berghlaup. Vegagerðin hefur mælt og fylgst með sigi á vegsvæðum í Almenningum frá árinu 1982. Skriðið hefur valdið árlegum skemmdum og er talin hætta á skriði eða jafnvel hruni vegstæðisins. Mikilvægt er því að geta varað vegfarendur við í tæka tíð. Árið 2017 var gerð tilraun með vöktunarkerfi sem ekki reyndist nægjanlega vel. Nú er unnið að nýjum tillögum að vöktun ásamt því að leggja drög að viðbragðsáætlunum, hvenær er talið nauðsynlegt að loka veginum og hvaða búnað þarf til þess.
Í samgönguáætlun árin 2017 og 2018 voru fjárveitingar til rannsókna á jarðgangagerð milli Siglufjarðar og Fljóta og lauk þeim árið 2019. Gefin var út greinargerð í mars 2020 þar sem gerð var tillaga að jarðgöngum frá Fljótum til Hólsdals í Siglufirði. Göngin hafa verið nefnd Siglufjarðarskarðsgöng. Þau göng yrðu um 5,2 km löng og myndu stytta Siglufjarðarveg um 14 km. Þau myndu koma í stað erfiðs kafla frá Fljótum að Strákagöngum sem er snjóþungur og veðrasamur og þá þyrfti jafnframt hvorki að fara lengur um jarðskriðssvæði í Almenningum né Strákagöng.
Múlagöng á Ólafsfjarðarvegi voru opnuð árið 1990. Þau eru 3,4 km að lengd, einbreið en með mætingarútskotum. Umferð um göngin hefur aukist mikið á undanförnum árum. Meðalumferð árið 2019 var 678 ökutæki á sólarhring og meðalumferð að sumri til var um 1.000 ökutæki á sólarhring sama ár. Í dag eru veruleg óþægindi og tafir á sumrin vegna mikillar umferðar. Búið er að koma upp umferðarstjórnunarbúnaði sem hægt er að nota við sérstakar aðstæður þegar umferð er mikil, m.a. með því að hindra að stærstu bílar sem komast ekki í útskot mætist, auk þess að minnka líkur á að venjulegir bílar mæti stærstu bílunum. Gerð var grein fyrir endurbótum á leiðarvali fyrir Ólafsfjarðarveg milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar í skýrslu frá árinu 2012. Niðurstaða í þeirri skýrslu var að mögulegt væri að breikka Múlagöng auk þess að gera frekari endurbætur á snjóflóðavörnum á veginum. Einnig var skoðaður kostur á nýjum 8,5 km löngum jarðgöngum frá Karlsá til Ólafsfjarðar. Með nýjum og lengri jarðgöngum er talið að öryggismálum sé betur borgið en þau eru meira en tvöfalt dýrari kostur en að breikka Múlagöng. Vegagerðin mælir með að breikka göngin en einnig að fylgjast jafnframt vel með umferð og töfum.
Vöktun á veginum frá Fljótum og til Siglufjarðar er mikilvæg, bæði vegna mögulegs grjóthruns á veginn, ekki síst í Mánaskriðum, en einnig vegna hættu á jarðskriði í Almenningum. Farnar eru daglegar eftirlitsferðir á þeim kafla og oftar ef rigningartíð er og því meiri hætta á hruni. Væntanleg er á þessu ári ný vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna þessa svæðis þar sem skilgreind verða þrjú stig; viðvörunarstig, hættustig og neyðarstig. Þá er einnig mikilvægt að gæta að snjóflóðavörnum á Ólafsfjarðarvegi milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Þá er stefnt að því að gera útvarpssendingar mögulegar í öllum göngum.
Um hvenær von sé á nýjum göngum er í samgönguáætlun 2020–2034 gert ráð fyrir að Fjarðarheiðargöng ásamt Seyðisfjarðar- og Mjóafjarðargöngum séu næstu jarðgöng í röðinni. Þá er nú unnið að því að gera heildstæða greiningu á jarðgangakostum sem verði grundvöllur að frekari forgangsröðun, þar með taldar umræddar framkvæmdir. Mikilvægt er að fyrirsjáanleiki sé við framkvæmdir jarðganga og íbúar geti séð hvar framkvæmdir eru í röðinni.
Þeir kostir sem ég fór yfir hér að framan eru kostir sem borin hafa verið kennsl á og hafa verið ræddir. Ég fagna öllum hugmyndum sem geta bætt samgöngumál, lífskjör og lífsgæði Íslendinga. Alla kosti þarf að ræða og meta auk þess sem taka þarf ákvörðun um að veita til þeirra fé. Það er ákvörðun Alþingis eins og kunnugt er. Stefnt hefur verið að því að ávallt sé unnið að gerð einna, í það minnsta, jarðganga á hverjum tíma. Ég tel vel koma til greina að skoða möguleika á því að hægt væri að grafa fleiri en ein jarðgöng í einu í framtíðinni með svipuðum hætti og frændur okkar Færeyingar hafa gert og hv. þingmaður nefndi í upphafsorðum sínum.