151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

samgönguúrbætur á norðanverðum Tröllaskaga.

518. mál
[14:10]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Við höfum heyrt af því reglulega í vetur og sérstaklega í fyrravetur að samgöngur við Fjallabyggð fari úr skorðum vegna veðurs, helst þá vegna snjóflóðahættu. Það er mjög mikilvægt í því samhengi að við horfum til þess að við viljum jú að allir búi við ákveðin skilyrði þegar kemur að samgöngum en við verðum líka að horfast í augu við það að við þurfum að forgangsraða verkefnum og það veltur svolítið mikið á því í framtíðinni að menn geri það upp við sig hvora leiðina menn vilji fara. Vilja menn fara í vesturátt eða til austurs og þá inn í Eyjafjörð og til Akureyrar og þar í tengingu við alþjóðaflugvelli? Menn eiga að vera raunsæir í því sem menn fara með. Ég tel mjög ólíklegt að menn fari í báðar áttir á sama tíma.