samgönguúrbætur á norðanverðum Tröllaskaga.
Herra forseti. Ég fagna þessari umræðu og orðum bæði hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra. Almennt um Tröllaskaga er auðvitað það að segja að gera þyrfti áætlun um þau jarðgöng sem eru hér til umræðu og fleiri sem þurfa auðvitað að komast á framkvæmdastig, jarðgangaáætlun. Á hana er minnst í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar með samgönguáætlun og mjög mikilvægt að hún sé unnin, bæði með tilliti til forgangsröðunar og kostnaðar og annars slíks. Ég legg einfaldlega til, vegna þess að það er einhver besta fjárfesting sem hægt væri að fara í, að menn hugi að lántöku ríkisins fyrir kannski tíu jarðgöngum þannig að það væri hægt í raun og veru að ná þessu á mesta hraða sem hægt væri að vinna jarðgöng á Íslandi þannig að þetta væri komið í gott lag fyrir 2030 eða 2040.