151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

samgönguúrbætur á norðanverðum Tröllaskaga.

518. mál
[14:12]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra fyrir svörin og að fitja upp á þessu umræðuefni. Þetta er brýnt verkefni fyrir norðan. Ég man nú svo langt að ég man þegar Ólafsfjarðarmúli var ruddur og þar komst á vegasamband og svo þekkjum við auðvitað framvinduna. En það eru mörg verkefni og ærin sem þarf að vinna og hæstv. ráðherra kom inn á jarðgangaáætlun. Nú eru Dýrafjarðargöng klár en við höfum ekki byrjað á nýjum verkefnum sem bíða. Hvenær telur hæstv. ráðherra að við getum vænst þess að jarðgangaáætlun líti dagsins ljós? Ef ég horfi vestur á firði eru þar a.m.k. fimm verkefni, stór og mikil, Miklidalur og Hálfdán koma upp í hugann og svo erfiða svæðið á milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar, Súðavíkurgöngin svokölluðu.