samgönguúrbætur á norðanverðum Tröllaskaga.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og þeim sem hér hafa tekið þátt. Ég vil segja á þeim stutta tíma sem ég hef hér að það er sannarlega rétt að eitt og annað hefur verið gert til að reyna að auka stýringu t.d. í Múlagöngum og annað því um líkt en það dugar ekki til. Það að ætla að breikka göngin er að mínu mati nánast óframkvæmanlegt. Hvar á að keyra á meðan verið er að breikka? Í annan stað leysir það ekki vandann sem við okkur blasir, sem er múlinn sjálfur. Það hef ég líka bara frá vegagerðarfólki sem tekur undir að þar erum við með undir það sem lokar vetrarþjónustunni fyrst og fremst, það sem hefur verið að hrjá okkur síðustu tvo vetur, það eru fyrst og fremst snjóflóðamálin. Auðvitað eru miklir þungaflutningar þannig að það er alveg rétt að margt hefur breyst og færst upp á vegina af sjónum.
Ég vil líka nefna að þegar orðið hafa slys á Öxnadalsheiðinni hefur umferðinni verið beint til Ólafsfjarðar í gegnum Fjallabyggð og áfram suður, þannig að það liggur fyrir að leysa þarf báðar leiðir. Ég vitnaði í frændur okkar Færeyinga áðan og þeir hafa verið að fjármagna framkvæmdir að einhverju leyti með vegtollum og mér finnst það vera atriði sem við eigum að velta fyrir okkur. Höfð voru uppi stór orð þegar Hvalfjarðargöngin fóru í gang en við getum kannski sagt að þeim hafi verið vel tekið þegar þau voru loksins komin í gagnið þrátt fyrir að fólk þyrfti að borga í þau til að eiga hér eitt atvinnusvæði. Ég tek undir það að við erum auðvitað með sjúkrahús og alþjóðaflugvöll öðrum megin en bæði göngin eru afskaplega mikilvæg til að tengja það risastóra svæði sem Tröllaskagi er. (Forseti hringir.) Ég tek undir með hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni um það að við eigum að taka lán og reyna að koma þessum miklu samgöngubótum sem víðast um land í gagnið vegna þess að það er framtíðarsparnaður.