151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

efling íslenskukennslu fyrir innflytjendur og fullorðinsfræðslu.

515. mál
[14:22]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu brýna málefni og vil byrja á að svara því fyrst að það er alveg ljóst að íslenskukennsla fyrir innflytjendur er samfélagslega mjög mikilvæg. Ég hef sem ráðherra lagt mikla áherslu á að efla íslenskunám og styrkja stöðu nemenda með annað móðurmál en íslensku á öllum skólastigum. Markmiðið er að auðvelda fólki með annað móðurmál en íslensku þátttöku í samfélaginu og gefa því færi á að nýta hæfileika sína í námi og störfum.

Fyrirspurn hv. þingmanns snýr að íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur og hvort ég hyggist beita mér fyrir því að efla íslenskukennslu. Þá langar mig að fara yfir hvað ríkisstjórnin hefur verið að gera í þeim málaflokki á síðustu misserum og nefna þar sérstaklega fjármuni og hvernig við höfum stóreflt menntakerfið á öllum stigum.

Sumarið 2020 voru framlög aukin til framhaldsskóla og háskóla til að bjóða upp á sumarnám fyrir nemendur og almenning til að sporna við neikvæðum afleiðingum atvinnuleysis í kjölfarið á heimsfaraldri. Boðið var upp á sumarnám og sumarstarf og unnu ráðherrar mennta- og félagsmála saman að eflingu margvíslegra aðgerða, m.a. í gegnum samráðshóp um atvinnu- og menntaúrræði. Hópnum er ætlað að samhæfa aðgerðir og koma með tillögur til að tryggja virkni og að nemendur og atvinnuleitendur geti nýtt tímabil óvissu til að bæta við sig námi og mennta sig til nýrra starfa. Þátttaka í sumarnáminu var mjög góð. Heildarfjöldi þátttakenda var 4.913 og af þeim sóttu 800 erlendir ríkisborgarar íslenskunámskeið. Eins og sjá má af þessum tölum er framboðið mikið og þátttakan líka mjög mikil og ég er mjög stolt af því að við höfum farið af stað með þetta. Í boði voru 260 námskeið.

Þá veitti ráðuneytið umtalsverða fjármuni til sumarnáms í tíu framhaldsskólum eða tæpar 100 milljónir og tóku þátt 650 nemendur í 64 áföngum. Þar var bæði um að ræða sérstaka íslenskuáfanga fyrir innflytjendur en einnig var stuðningur við íslensku samhliða starfstengdu undirbúningsnámi og eru nokkrir framhaldsskólar að þróa það enn frekar þannig að innflytjendur eða börn með annað móðurmál en íslensku séu sem mest í íslensku málumhverfi og fái jafnframt starfstengdan tungumálastuðning. Mikil gerjun er því í íslenskukennslu fyrir innflytjendur og stutt við þá þróun með auknum framlögum eins og kom fram í máli mínu til skólastarfs. Hér eru tækifæri til að sækja um styrki og hvatning til að efla íslenskukennslu og samstarf þvert á ráðuneyti til þess að styðja við betri samhæfingu og auka námsframboð. Eins og sjá má, eins og ég nefndi, voru um 700 innflytjendur sem sóttu íslenskunámið á háskólastiginu.

Annað vil ég nefna, virðulegi forseti. Innan átaksverkefnisins Nám er tækifæri sem ætlað er langtímaatvinnuleitendum hafa skólar verið hvattir til að bjóða upp á nám sem hentar fullorðnum og með sérstaka áherslu á íslensku fyrir innflytjendur. Margir skólar hafa brugðist við og sett upp íslenskunám fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Skólarnir bjóða upp á áfanga fyrir byrjendur og lengra komna í talmáli, sérstaklega sniðna að atvinnuleitendum. Sem dæmi má nefna Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Fjölbrautaskólann í Ármúla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem bjóða upp á undirbúningsáfanga fyrir starfsnámsbrautir, sérstaklega ætlaða fullorðnum. Þá hefur íslenskubraut Tækniskólans notið fádæma vinsælda og ekki getað annað eftirspurn. Aðrir skólar hafa lýst yfir áhuga á að laga námsbrautir sínar að fyrstu þrepum íslenska hæfnisrammans betur að nemendum með annað móðurmál en íslensku. Þá setti Háskólinn á Bifröst upp aðfaranám fyrir enskumælandi til undirbúnings fyrir háskólanám og sams konar nám hefur verið sett upp hjá Keili. Á þennan hátt hefur verið reynt að koma til móts við stóran hóp fólks með annað móðurmál en íslensku sem á undir högg að sækja á tímum kórónuveirunnar. (Forseti hringir.) Eins og hv. þingmaður sér hefur ríkisstjórnin og mennta- og menningarmálaráðuneyti fjárfest umtalsvert í þessum málaflokki.