efling íslenskukennslu fyrir innflytjendur og fullorðinsfræðslu.
Herra forseti. Þetta var mikilvæg spurning sem hv. þm. Guðjón S. Brjánsson bar upp. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svarið og að fara yfir það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera þegar kemur að framboði á íslenskukennslu fyrir innflytjendur í okkar samfélagi. Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt mál því að það er leiðin til þess að fólk af erlendum uppruna hafi sömu tækifæri og aðrir í samfélaginu. Mig langar að brýna hæstv. ráðherra í því að rýna þetta þegar komin verður betri reynsla á þetta, sjá hvað gangi vel og hvar þurfi kannski einhverju að breyta, og kynna það fyrir okkur hér á þingi sem og í samfélaginu vegna þess að ég held að ákall sé um það í samfélaginu að við tökum vel á móti fólki sem hingað kemur til að starfa og við viljum hafa þetta í lagi. Ég fagna þessu og við höldum áfram að vinna með þetta.