151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

efling íslenskukennslu fyrir innflytjendur og fullorðinsfræðslu.

515. mál
[14:29]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðjón S. Brjánsson) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mér fannst hæstv. ráðherra sannast sagna skauta létt yfir mikilvæg atriði. Mér fannst hún ekki nefna þátt símenntunarmiðstöðvanna, fullorðinsfræðslunnar eða framhaldsfræðslunnar nægilega vel. Þetta eru stofnanir sem hafa þrátt fyrir lítinn stöðugleika í rekstri sínum og starfsemi til langs tíma unnið mikilvæg störf við óvissuskilyrði, lyft grettistaki og sýnt aðlögunarhæfni og skjótan viðbragðstíma eins og við þær aðstæður sem nú eru uppi. Við köllum það oft fimmtu menntastoðina. Er ráðherra ekki sammála því? Framhaldsfræðslan getur sinnt mörgum veigamiklum þáttum sem tengjast menntunarstiginu og hækkun á því, áskorunum atvinnulífs vegna tæknibreytinga, fjölmenningu, íslenskuþjálfun, uppbyggingu hæfnismats á íslenskum vinnumarkaði og því sem er nærtækast nú; að sinna atvinnuleitendum. Lunginn úr síðasta ári var tími mikilla umskipta og dró fram styrkleika framhaldsfræðslunnar sem tókst að aðlaga verkefnin að ríkjandi þörfum á mjög stuttum tíma. Þetta hefur verið stuðningskerfi sem hefur það að markmiði að vera afl til að vinna m.a. gegn neikvæðum félagslegum afleiðingum atvinnuleysis og hækka menntunarstig. Það er mikil óvissa og tafist hefur að koma á laggirnar nýjum framhaldsfræðslulögum. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Liggur sú vinna algerlega í láginni? Það er dálítið áhyggjuefni. Hvernig er með þessa menntastefnu og hlutverk framhaldsfræðslunnar í því samhengi? Liggur það fyrir með skýrum hætti? Á þessu stigi virðist ekki alveg ljóst hvort framhaldsfræðslan eigi þar raunverulegt hlutverk. Er þetta ljóst í huga hæstv. ráðherra?