151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

efling íslenskukennslu fyrir innflytjendur og fullorðinsfræðslu.

515. mál
[14:31]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu leggjum við áherslu á nám alla ævi. Í menntastefnunni er fjallað sérstaklega um þennan þátt og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér það aðeins betur. Kannski ættum við að setjast niður og ég fari betur yfir þetta þótt ég svari því auðvitað hér eins og óskað hefur verið eftir.

Virðulegur forseti. Ég vil nefna að auðvitað hefur eftirspurn eftir framhaldsfræðslu aukist verulega. Eitt af því sem við erum að gera núna í ráðuneytinu er að styrkja allan ramma og veita fjármuni í þennan mikilvæga málaflokk. Eitt af því sem við sjáum að er að gerast núna, og ég vil vekja sérstaka athygli á, er að nokkrir þættir munu stuðla að því að við þurfum að einblína enn frekar á þennan málaflokk, og menntastefnan er auðvitað þáttur í því, og það er að við sjáum sjálfvirknivæðingu og við sjáum að störfin eru að breytast mjög mikið. Þess vegna hefur þessi ríkisstjórn ráðist í miklar kerfisbreytingar á Menntasjóðnum til að tryggja að það sé gott aðgengi og fólk geti leitað nýrra tækifæra. Við erum með enn frekari aðgerðir á döfinni á næstu dögum sem snúa að því hvernig við förum í að styrkja menntakerfið enn frekar. Eins og hv. þingmaður sér erum við að sjálfsögðu að veita aukna fjármuni í það. Framhaldsskólarnir, háskólarnir og endurmenntunar- og símenntunarmiðstöðvarnar hafa aldrei tekið á móti jafn mörgum nemendum sem eru tilbúnir til að leita nýrra tækifæra.