tryggingavernd nemenda.
Herra forseti. Fyrirspurn sú sem ég lagði fyrir hæstv. ráðherra og er hér til munnlegs svars og umræðu er á þessa leið: Í ljósi þess að ýmis dæmi eru um það í iðnnámi að nemendur fái að fara til fyrirtækja utan skólans til að læra á vélar og tækjabúnað sem skólinn hefur ekki yfir að ráða án þess þó að um ráðningarsamband sé að ræða milli nemans og fyrirtækisins, hvernig telur ráðherra best að haga tryggingavernd nemendanna við slíkar aðstæður?
Líkt og kemur fram í fyrirspurninni fer hluti af kennslunni í sumum iðngreinum sem kenndar eru á framhaldsskólastigi þannig fram að nemendur fara á vinnustað í viðkomandi fagi, m.a. til að komast í vélar og tæki sem skólarnir hafa ekki yfir að búa. Ég held að það sé alveg óumdeilt að þetta sé mikill fengur fyrir nemendurna og skemmtilegur og mikilvægur hluti af kennslunni. Ég myndi vilja sjá að þetta yrði svona áfram. En tildrögin að fyrirspurninni eru hins vegar þau að mér var bent á dæmi þar sem stjórnandi fyrirtækis í tækniiðnaði hafði áhyggjur af því hvað kynni að gerast ef upp kæmi óhapp. Þar var um tilvik að ræða þar sem fyrirtækið var með flóknar og kröftugar vélar. Til skamms tíma hafði fyrirtækið getað keypt viðbótartryggingar hjá tryggingafélagi sínu vegna svona heimsókna en nú gáfust þau svör að tryggingafélögum væri ekki heimilt að veita tryggingu fyrir aðra en þá sem væru í ráðningarsambandi við fyrirtækið. Svör skólans voru á þá leið, þegar spurt var eftir því, að heimilistrygging nemandans ákvarðaði tryggingavernd hans. Ég tel hins vegar alveg óljóst hvort einföld heimilistrygging myndi ná yfir það ef slys yrði við slíkar aðstæður. Þetta finnst mér mikilvægt að ræða við hæstv. menntamálaráðherra vegna þess að ég held að við séum sammála um að mikilvægt sé að nemendur geti farið á vinnustaði og komist í samband við þá sem eru að vinna í faginu en vitaskuld verða tryggingar að vera í lagi. Þó svo að enginn vilji auðvitað að óhöpp eða slys verði vitum við samt að þau geta orðið.
Ég vil því spyrja ráðherra hvort hún sé ekki sammála mér í því að hér þurfum við að sjá til þess að það sé engin óvissa uppi fyrir nemendurna.