151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

tryggingavernd nemenda.

528. mál
[14:39]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er gott að heyra að ráðherra vísi hér í lög sem eiga að tryggja að nemendur séu slysatryggðir. Miðað við þá ábendingu sem ég fékk held ég hins vegar að mjög mikilvægt sé að kanna það þá frekar. Svo virðist vera að hvorki fyrirtækin né skólarnir séu viss um að þetta nái utan um allar þær aðstæður sem iðnnemar eru í og sér í lagi ekki þegar það snýst um að fara í heimsóknir á vinnustaði þar sem nemendur eru ekki á samningi eða í slíku sambandi við vinnustaðinn. Ég tel að fara þurfi ítarlegar yfir hvort hér sé gloppa. Þær upplýsingar sem ég hef eru að skólarnir vísi nemendum á heimilistryggingu. Ef svo er hlýtur það að vera vegna þess að þeir telja að tryggingaverndin sé ekki næg. En líkt og ég sagði í fyrirspurninni finnst mér mikilvægt að nemendurnir geti farið á vinnustaðina og fengið að kynnast tækjunum og tólunum. Ég tel hins vegar að fara þurfi betur yfir tryggingaverndina því að hún nær ekki yfir allt sem skólarnir bjóða upp á og leyfa nemendum sínum að prófa.