151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

tryggingavernd nemenda.

528. mál
[14:41]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að ekki ríki nokkur vafi um öryggismál. Það skiptir okkur í ráðuneytinu auðvitað mjög miklu máli. Ég tek við þessum ábendingum um að óvissa ríki, en ég vísa í lögin og hvernig þessi er háttað þar. Í sambandi við allt starfsnám og verklegt nám finnst mér mjög brýnt, eins og hv. þingmanni, að öryggi sé tryggt í starfsumhverfi skólanna, í starfsumhverfi nemenda. Ég er því sammála hv. þingmanni um að við skoðum það þá bara enn frekar. Við tökum það auðvitað til okkar og ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Við finnum fyrir því að aðsókn í iðnnám og allt sem tengist því hefur verið að aukast verulega og ég finn fyrir miklum áhuga. Við höfum verið að taka á móti þúsundum nýrra nemenda inn í skólakerfið. Það er alveg ljóst að öll umgjörð og allt sem tengist því þarf að vera örugg og góð og ekki má ríkja óvissa þar. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu.