viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir COVID-19.
Herra forseti. Í dag hafa alls 6.058 staðfest smit greinst og enn eiga mögulega einhverjir, vonandi þó sem fæstir, eftir að bætast í hópinn. Staðreyndin er að þrátt fyrir að við munum vonandi ná að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar á árinu þurfum við að takast á við afleiðingar faraldursins sem birtist bæði í einstaklingum sem kljást við langtímaáhrif en einnig í auknum fjölda fólks sem býr við langvarandi atvinnuleysi og erfiðleika tengda því. Hvort tveggja er fyrirsjáanlegt og er eitthvað sem við þurfum að búa bæði heilbrigðis- og félagslegu kerfin okkar undir. Í viðtali við Hilmu Hólm lækni hjá Íslenskri erfðagreiningu á visir.is nýverið kom fram að fjórðungur þeirra sem smituðust af kórónuveirunni í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi finnur enn nokkur eða mikil einkenni sex mánuðum eftir veikindin. Af þeim eru um 12% við lélega eða mjög lélega heilsu. Það þýðir að ætla má að af þeim sem hafa smitast séu ríflega 1.500 einstaklingar í dag að glíma við langtímaafleiðingar kórónuveirusmits, afleiðingar sem lýsa sér m.a. í skemmdum á líffærum, síþreytu, heilaþoku og sársauka. Þannig búa þeir einstaklingar margir hverjir við skert lífsgæði og gætu í einhverjum tilfellum endað í örorku en afleiðingarnar virðast vera mjög einstaklingsbundnar og því mikilvægt að fylgjast vel með hverjum og einum. Svo má einnig nefna, herra forseti, að margir glíma einnig við þann vanda að mæta ekki skilningi hjá vinnuveitendum varðandi það að geta kannski takmarkað sinnt vinnu vegna veikinda og það er líka eitthvað sem við þurfum að bregðast við.
Herra forseti. Við þurfum nefnilega að halda vel utan um þá sem hafa fengið Covid-19 og búa til skýra ferla fyrir þá sem kljást við langtímaafleiðingar sjúkdómsins. Það er ekki ásættanlegt að þeir einstaklingar þurfi að fara á milli stofnana og lækna til að fá lausn meina sinna heldur væri æskilegast ef allir gætu leitað á sama stað þar sem er þekking og reynsla til að takast á við þau vandamál sem verið er að kljást við, bæði andlega og líkamlega. Vandinn heldur áfram að vaxa og við þurfum að bregðast skjótt við.
Herra forseti. Ég vil því beina fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um eftirfarandi:
„Hefur ráðuneytið metið hversu margir Íslendingar séu mögulega að glíma við langvinnan heilsuvanda eftir Covid-19 smit?
Til hvaða aðgerða hefur verið gripið innan heilbrigðiskerfisins til að sinna þeim einstaklingum sem glíma við langvinnan heilsuvanda eftir Covid-19 smit?
Telur ráðherra ástæðu til að bregðast á einhvern hátt við til að tryggja stuðning við þennan hóp einstaklinga og tryggja réttindi þeirra innan heilbrigðiskerfis og á vinnumarkaði?
Hefur verið komið á skýru ferli til að tryggja að þessir einstaklingar fái upplýsingar um hvert þeir geta leitað innan heilbrigðiskerfisins til að fá aðstoð?“