151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir COVID-19.

520. mál
[15:03]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir hefur beint til mín munnlegri fyrirspurn um viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir Covid-19. Þingmaðurinn spyr í fyrsta lagi: Hefur ráðuneytið metið hversu margir Íslendingar séu mögulega að glíma við langvinnan heilsuvanda eftir Covid-19 smit? Þá er því til að svara að samkvæmt almennum rannsóknum er talið að u.þ.b. 10% þeirra sem fá Covid-19 sýkingu hafi einkenni í meira en þrjár vikur frá upphafi sýkingar. Langvinn einkenni eftir Covid-19 sýkingu geta verið margvísleg, misalvarleg og misíþyngjandi. Á Íslandi gætu það því verið rúmlega 600 einstaklingar af þeim rúmlega 6.000 sem hafa fengið staðfest smit sem glíma við einhvers konar langvinn einkenni. Frá upphafi faraldurs hafa um 300 manns verið lagðir inn á sjúkrahús. Sem betur fer er það svo að enn sem komið er, og við erum náttúrlega í faraldrinum enn þá, glímir einungis hluti þeirra sem fá Covid-19 við langvinn eftirköst eftir veikindin.

Hv. þingmaður spyr til hvaða aðgerða hafi verið gripið innan kerfisins. Þá er því til að svara að unnið hefur verið að skipulagi verklags og samþættingu þjónustu á milli stofnana. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu hefur í samvinnu við Landspítala og endurhæfingarstofnanirnar Reykjalund, Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og Kristnes gefið út leiðbeiningar og skipulag vegna þjónustu við sjúklinga með langvinn einkenni eftir Covid-19. Það er mikilvægt, eins og kemur fram í máli hv. þingmanns, að þessum hópi bjóðist rétt þjónusta á réttu þjónustustigi. Unnið er að því að tryggja framboð slíkrar þjónustu. Þess vegna var ákveðið á síðasta ársfjórðungi ársins 2020 að sérstakt viðbótarfjármagn, 200 millj. kr., skyldi renna í það verkefni að mæta þörf fólks um endurhæfingu eftir Covid-19 veikindi og til að stytta biðtíma eftir annarri endurhæfingu. Sjúkratryggingum Íslands var falið að ná samningum um þessa þjónustu og sömdu í framhaldinu við Reykjalund um endurhæfingu, sérstaklega fyrir fólk sem fengið hefur Covid-19. Sú þjónusta er afar mikilvægur þáttur í því að koma í veg fyrir langtímaheilsuvanda og skerðingu lífsgæða.

Þingmaðurinn spyr hvort ráðherra telji ástæðu til að bregðast við á einhvern hátt til að tryggja stuðning við þennan hóp og tryggja réttindi hans innan heilbrigðiskerfisins og á vinnumarkaði. Þá liggur það fyrir að markmið laga um réttindi sjúklinga er að tryggja sjúklingum tiltekin réttindi. Í þeim lögum kemur fram að allir sjúklingar eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á. Þegar við erum á þeim stað að jafnframt því að byggja upp þjónustuna erum við að öðlast þekkingu á eðli og umfangi sjúkdómsins þá skiptir máli að hafa hraðar hendur, eins og hv. þingmaður nefnir. Þess vegna erum við að auka þjónustu við hópinn eftir föngum og jafnharðan.

Varðandi það að tryggja réttindi þessara einstaklinga á vinnumarkaði fellur það undir verksvið félags- og barnamálaráðherra.

Spurt er hvort komið hafi verið á skýru ferli til að tryggja að þessir einstaklingar fái upplýsingar um það hvert þeir geti leitað innan kerfisins til að fá aðstoð. Ferlið er og á að vera skýrt. Heilsugæslan er alltaf fyrsti viðkomustaður í kerfinu og það á við í þessum tilvikum eins og öðrum. Á Heilsuveru má finna þjónustuvefsjá með yfirliti yfir þjónustu í boði um land allt og svo líka vaktsíma. Einnig er hægt að nota netspjall Heilsuveru til að fá upplýsingar. Gera má ráð fyrir að margir sjúklingar muni sem betur fer ná sér án sérhæfðar meðferðar en heildræn nálgun heilsugæslunnar og skipulag með teymisvinnu er mikilvægt í þessu samhengi. Heilsugæslan sér um ráðgjöf og síðan tilvísun þegar þörf er á til göngudeildar Landspítala eða endurhæfingarstofnana. Landspítali hefur einnig haldið uppi skipulögðu eftirliti og eftirfylgd með sjúklingum sem veikjast af Covid-19 á Covid-göngudeild og eftir atvikum á öðrum göngudeildum. Landspítalinn veitir heilsugæslu ráðgjöf eftir þörfum og Landspítalinn og heilsugæslan vísa síðan sjúklingum eftir þörfum til endurhæfingarstofnana. Endurhæfing á réttum tíma í kjölfar veikinda getur skipt sköpum og komið í veg fyrir langvinnan heilsuvanda. Sjúklingar með alvarleg einkenni eða fjölþættan vanda eru þá og eiga að vera í forgangi. Samþætting eftirfylgdar eftir endurhæfingu fer síðan fram með aðkomu að Landspítala eða heilsugæslu eftir þörfum. Eins og áður kemur fram býður Reykjalundur nú upp á sérstaka endurhæfingarmeðferð fyrir þau sem glíma við langvarandi einkenni vegna Covid-19 smits og nú þegar hafa um 50 einstaklingar notið góðs af þeirri þjónustu.