viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir COVID-19.
Herra forseti. Það er mikilvæg spurning sem hér er varpað fram varðandi þá sem fá langtímaeinkenni af Covid-19 og hvernig við bregðumst við því. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svör hennar og ég tek undir það að gríðarlega mikilvægt er að grípa inn í og að fólk fái endurhæfingu á réttum tíma.
Mig langar að nota þetta tækifæri til að tala aðeins um þetta í víðara samhengi. Við erum svo gæfusöm að búa í samfélagi sem getur aðstoðað fólk sem glímir við eftirköst erfiðra sjúkdóma, ekki bara Covid-19. Þar er endurhæfing svo gríðarlega mikilvæg og það að komast aftur út í samfélagið þótt maður þurfi jafnvel að lifa með einhverjum krankleika. Covid beinir svolítið sjónum að því að það er fólk í þeirri stöðu. Mig langaði bara að nota þetta samhengi til að minna á að við getum notað hina erfiðu lærdóma af Covid til að taka almennt séð betur utan um þennan hóp í samfélaginu.